fbpx
Föstudagur 09.maí 2025
Pressan

Lést þegar hvalur hvolfdi bát

Pressan
Mánudaginn 2. október 2023 08:00

Búrhvalur. Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Karlmaður lést þegar hvalur hvolfdi bát undan ströndum Sydney í Ástralíu í síðustu viku. Tveir menn, sem voru í veiðiferð, voru í bátnum. Annar þeirra lést á sjúkrahúsi eftir að hafa verið bjargað í land. Hinn maðurinn meiddist en slapp lifandi frá slysinu.

Jihad Dib, ráðherra neyðarmála, sagði að um „ótrúlegt slys“ hafi verið að ræða. Í tilkynningu frá lögreglunni segir að líklega hafi hvalurinn komið upp á yfirborðið og hafi þá rekist í bátinn og hvolft honum með þeim afleiðingum að báðir mennirnir lentu í sjónum.

Annar maðurinn var meðvitundarlaus þegar hann náðist upp úr sjónum. Hann lést síðar. Ástand hins var stöðugt þegar hann var fluttur á sjúkrahús.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Tvöfalt líf lyfjafræðingsins: Afhjúpa manninn á bak við eina alræmdustu vefsíðu heims

Tvöfalt líf lyfjafræðingsins: Afhjúpa manninn á bak við eina alræmdustu vefsíðu heims
Pressan
Í gær

Hann var myrtur árið 2021: Á mánudag ávarpaði hann morðingja sinn

Hann var myrtur árið 2021: Á mánudag ávarpaði hann morðingja sinn
Pressan
Fyrir 2 dögum

Myndband varpar ljósi á hrikalegt slys áhorfandans

Myndband varpar ljósi á hrikalegt slys áhorfandans
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sala á „gullvegabréfum“ dæmd ólögleg

Sala á „gullvegabréfum“ dæmd ólögleg
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sannleikanum verður hver sárreiðastur – MAGA-liðar fokillir út í gervigreindina sem neitar að taka undir með þeim

Sannleikanum verður hver sárreiðastur – MAGA-liðar fokillir út í gervigreindina sem neitar að taka undir með þeim
Pressan
Fyrir 2 dögum

Konan sem rændi Elizabeth Smart aftur handtekin

Konan sem rændi Elizabeth Smart aftur handtekin
Pressan
Fyrir 3 dögum

Lést þegar sprengja sprakk í höndum hennar

Lést þegar sprengja sprakk í höndum hennar
Pressan
Fyrir 3 dögum

Segja þessa tillögu Trump þá heimskulegustu til þessa

Segja þessa tillögu Trump þá heimskulegustu til þessa