fbpx
Föstudagur 09.maí 2025
Eyjan

Réttlæting Ásdísar á silfurfatinu til auðugu systkinanna haldi engu vatni og fjárfestar ráði bænum

Eyjan
Fimmtudaginn 28. september 2023 18:05

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Theodóra S. Þorsteinsdóttir, bæjarfulltrúi Viðreisnar í Kópavogi, segir að meirihlutinn í Kópavogi hafi fengið fjárfestum skipulagsvaldið. Þetta hafi nýlegt samkomulag bæjarins um svokallaðan Reit 13 sýnt skýrt.

Fram hefur komið að fjárfestar í félaginu Fjallasól, sem er í eigu MATA-systkina sem eiga til dæmis Ölmu leigufélagið og flest stærstu fasteignafélög landsins, hafi gert samkomulag við bærinn um byggingarrétt á reitnum. Minnihlutinn í bæjarstjór hefur gagnrýnt að þetta samkomulag hafi verið kynnt bæjarstjórn eftir að það var undirritað.

Theodóra segir að þetta hafi lengi verið í uppsiglingu og allar skýringar Ásdísar Kristjánsdóttur bæjarstjóra, um meintan ómöguleika að setja reitinn í útboð, haldi ekki vatni. Theodóra vekur athygli á málinu í pistli sem birtist hjá Vísi í dag.

Sjá einnig: Ásdís sökuð um að færa einum ríkustu systkinum landsins lúxus-lóðir á silfurfati án útboðs – „Þetta verða dýrar íbúðir fyrir ríkt fólk“

Langur aðdragandi

„Haustið 2017 sendi fjárfestingafélagið Vinabyggð erindi til skipulagsráðs þar sem þeir kynna áform sín um að fá tvær til þrjár arkitektastofur til að koma með tillögu að deiliskipulagi. Áformin gerðu ráð fyrir að í samráði við „skipulagsdeild Kópavogsbæjar“ yrði ein tillaga valin og höfundi hennar falið að klára deiliskipulag til samþykktar, ekki væri um formlega samkeppni að ræða.

Samhliða þessu erindi frá Vinabyggð 2017 var send kynning frá þeim þar sem fram kemur að til að unnt sé að ljúka málinu þurfi Hjálparsveit skáta að flytja og að þar geti Kópavogsbær aðstoðað. „Til þess að þetta gangi eftir þarf aðkomu Kópavogsbæjar með úthlutun á nýrri lóð og ættu allir aðilar að málinu að hagnast“ (orðrétt úr erindi Vinabyggðar).“

Á þessum tíma var Theodóra formaður skipulagsráðs og á fundi ráðsins var erindi Vinabyggðar lagt fram og kynnt, en ekki samþykkt. Theodóra sendi í framhaldinu tölvupóst á þáverandi bæjarstjóra og sagðist ekki ætla að samþykkja erindið þar sem um „brútal“ byggingarmagn væri að ræða. Ekkert gerðist svo frekar í málinu fyrr en ári seinna þegar nýr meirihluti tók framhaldserindi frá Vinabyggð til skoðunar með tillögum arkitekta. Aftur var erindið lagt fyrir skipulagsráð, en hvorki samþykkt eða synjað. Það var aðeins kynnt.

„Forsvarsmenn Vinabyggðar létu það hins vegar ekki trufla sig nokkuð við áformin og héldu áfram að skipuleggja reit sem þeir áttu bara um helming af en Hjálparsveit Skáta átti hluta og Kópavogsbær hluta.“

Fleiri sem hafi gagnrýnt „brútal“ byggingarmagn

Né  séu bæjarstjóri og fjárfestar að væna Theodóru um að hafa skipt um skoðun og hjóla í manninn frekar en málið. Sem sé áhugavert í ljósi þess að orðræða Ásdísar Kristjánsdóttur bæjarstjóra og fjárfestana sem fengu fasteignirnar án útboðs sé svo áþekkt að erfitt sé að greina þar á milli. 

Theodóra hafi frá upphafi lagst gegn þessum áformum og sé hún ekki sú eina.

„Forstjóri Skipulagsstofnunar til langs tíma, Ásdís Hlökk Theodórsdóttir, sérfræðingur í skipulagsmálum, setur stórt spurningarmerki við stjórnsýslu Kópavogsbæjar og segist ekki þekkja dæmi um að einkaaðili taki upp á sitt einsdæmi og án samþykkis að vinna deiliskipulag á reit þar sem þriðji aðili er fasteignareigandi og sveitarfélagið sé lóðarhafi. „Þetta held ég að hljóti að vera mjög óvenjulegt fyrirkomulag, ef ekki einstakt“ er haft eftir fyrrum forstjóra Skipulagsstofunnar. Hún bætir við að lagabókstafurinn sé skýr um að ef einkaaðili eigi að fá heimild til að vinna deiliskipulagstillögu þurfi hann umboð bæjarins og samþykki bæjarstjórnar fyrir. Hvorugt lá fyrir í tilviki Vinabyggðar og verulega hafi skort á formfestu og skjalfestingu málsins. Því má segja að þarna sé um ræða óleyfisframkvæmd.“

Ómöguleiki sem sé tilbúningur fjárfesta

Bæjarstóri hafi ítrekað réttlætt málið með vísan til þess að ómögulegt hafi verið að selja öðrum reitinn, því þar sé reiknað með sameiginlegum bílakjallara sem bæjarlandið hafi tengst. Sá ómöguleiki sé samt í raun sú staðreynd að fjárfestar hafi náð að ryðja sér leið framhjá stjórnsýslu Kópavogsbæjar án nokkurs viðnáms og hafa nú fengið samþykki meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknar fyrir deiliskipulagi sem felur í sér gífurlegt magn af byggingum.

Vinabyggð seldi fasteignir sínar á síðasta ári með þeim auknu byggingarheimildum sem birtast í hinu nýja deiliskipulagi, um 12.000 fermetrar, fyrir 1,5 milljarð króna. Kaupandinn er félagið Fjallasól. Kópavogsbær seldi sinn hluta til Fjallasólar einnig fyrir 1,5 milljarð króna en án auglýsingar. Hér hefur því markaðurinn skipulagt samfélagið sem okkur kjörnum fulltrúum er ætlað að gera.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Vilhjálmur brýnir sinn gamla flokk – Vill að meira verði gert fyrir Breiðholtið

Vilhjálmur brýnir sinn gamla flokk – Vill að meira verði gert fyrir Breiðholtið
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Össur segir elda loga í Sjálfstæðisflokknum – „Hvenær sýður upp úr?“

Össur segir elda loga í Sjálfstæðisflokknum – „Hvenær sýður upp úr?“