fbpx
Sunnudagur 14.desember 2025
433Sport

Dregið í 2. umferð Meistaradeildarinnar – Valskonur í pottinum

Helgi Fannar Sigurðsson
Fimmtudaginn 14. september 2023 22:00

Fréttablaðið/Anton Brink

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dregið verður í 2. umferð Meistaradeildar kvenna á morgun. Drátturinn hefst klukkan 11:00 að íslenskum tíma og hægt verður að fylgjast með beinu streymi á heimasíðu UEFA. Valur er í pottinum að þessu sinni.

Í 2. umferð keppninnar þarf að vinna tvo leiki, heima og að heiman, við sama lið til að komast í riðlakeppnina. Leikirnir fara fram 10. eða 11. október og 18. eða 19. október.

Liðunum sem spila í 2. umferð er skipt í tvo hópa sem UEFA kallar „Champions Path“ og „League Path“. Í „Champions Path“ eru þau lið sem tryggðu sér sæti í keppninni með því að verða meistarar í sínu landi á síðasta tímabili. Í „League Path“ eru þau lið sem tryggðu sér sæti í keppninni með því að lenda í öðru eða þriðja sæti í sínu heimalandi.

Valur er í „Champions Path“ og getur dregist á móti eftirtöldum liðum.

SK Slavia Praha – Tékkland
FC Rosengård – Svíþjóð
SKN St. Pölten Frauen – Austurríki
Glasgow City FC – Skotland
SL Benfica – Portúgal
FC Zürich – Sviss
AS Roma – Ítalía

Slavia Praha, Rosengård og Roma sátu hjá í fyrstu umferð. Barcelona, Lyon, Bayern München og Chelsea eru einu liðin sem sitja hjá bæði í 1. og 2. umferð og fara beint inn í riðlakeppnina.

Hér er hægt að lesa nánar um keppnina á heimasíðu UEFA.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Benzema boðar óvænta endurkomu

Benzema boðar óvænta endurkomu
433Sport
Í gær

Stefán skefur ekki af því – „Held að það sé ekki hægt að finna mikið auðvirðilegri persónu“

Stefán skefur ekki af því – „Held að það sé ekki hægt að finna mikið auðvirðilegri persónu“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Albert uppljóstrar um nöfn stórliða sem drógu sig úr viðræðum við hann eftir að kærumálið kom upp

Albert uppljóstrar um nöfn stórliða sem drógu sig úr viðræðum við hann eftir að kærumálið kom upp
433Sport
Fyrir 2 dögum

Salah snýr aftur

Salah snýr aftur