Söngkonan Svala Björgvins lætur gott af sér leiða en nýlega hannaði hún peysur og hettupeysur með fyrirtækinu NOROM í samstarfi við Solaris.
„Ég er spennt að segja ykkur frá því að ég var að hanna Svölu peysur og hettupeysur með fyrirtækinu N O R O M og í samstarfi við Solaris – hjálparsamtök fyrir hælisleitendur og flóttafólk á Íslandi,“ segir Svala í færslu á Facebook þar sem hún segir frá nýja verkefninu.
„Fjöldi fólks sem undanfarið hefur neyðst til að leggja á flótta og yfirgefa heimkynni sín hefur aldrei verið meiri og er það ein stærsta áskorun í mannúðarstarfi í dag. Margt bendir til þess að flóttafólki muni halda áfram að fjölga verulega samhliða versnandi lífsgæðum og neyðarástands af völdum hamfarahlýnunar ásamt baráttu fólks um lífsgæði og völd. Fjárhagsaðstoð við flóttafólk hefur því aldrei verið jafn mikilvæg þar sem þörf er á fjármagni fyrir mataraðstoð, heilbrigðisaðstoð, lögfræðiaðstoð og húsnæðisaðstoð.
Hver 1000 krónur af seldri Svölu peysu rennur beint til Solaris! Hægt er að versla peysurnar á
norom.net og við erum með krakkastrærðir líka!
“