fbpx
Sunnudagur 11.maí 2025
Pressan

Afkastamiklir fjársvikarar handteknir – Sviku 12 milljarða út úr eldra fólki

Pressan
Miðvikudaginn 29. mars 2023 19:30

Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tælenska lögreglan hefur handtekið 21 meðlim glæpagengis sem einbeitti sér að því að svíkja fé út úr eldra fólki. Er talið að fórnarlömbin séu 365 talsins, öll frá Bandaríkjunum og öll yfir sextugu.

Eru glæpamennirnir sagðir hafa gefið sig út fyrir að vera lögreglumenn sem væru að rannsaka peningaþvætti. Með þessu tókst þeim að svíkja sem nemur 12 milljörðum króna út úr fólkinu.

People segir að lögreglan hafi lagt hald á 162 bankareikninga, fjölda fasteigna, 61 farsíma, tvo bíla og skammbyssu.

Það var netglæpadeild tælensku lögreglunnar sem stóð fyrir aðgerðunum í kjölfar upplýsinga sem bárust frá bandarísku alríkislögreglunni FBI og bandarískum leyniþjónustustofnunum.

Glæpamennirnir notuðust við símaver til að hringja í fólk og þykjast vera lögreglumenn að rannsaka peningaþvætti. Þeir sögðu fólki að bankareikningar þess væru grunsamlegir og að það þyrfti að flytja fé af þeim rafrænt yfir á aðra reikninga til að hægt væri að staðfesta uppruna þess. Þeir brutust einnig inn í tölvu sumra fórnarlambanna og notuðu tölvuveirur til að ná stjórn á þeim að sögn Bangkok Post.

Peningarnir voru síðan hvítþvegnir með því að senda þá í gegnum gullverslanir, veitingastaði og ýmis afþreyingarfyrirtæki í Taílandi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Áhrifavaldur féll í yfirlið í beinni útsendingu og fólk er brjálað yfir viðbrögðum fréttamannsins

Áhrifavaldur féll í yfirlið í beinni útsendingu og fólk er brjálað yfir viðbrögðum fréttamannsins
Pressan
Í gær

Svona komast Kínverjar fram hjá tollum Trump

Svona komast Kínverjar fram hjá tollum Trump
Pressan
Fyrir 2 dögum

Reyna að fæla ferðamenn frá með hörðum aðgerðum

Reyna að fæla ferðamenn frá með hörðum aðgerðum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Robert Prevost er fyrsti bandaríski páfinn – Valdi sér nafnið Leó XIV

Robert Prevost er fyrsti bandaríski páfinn – Valdi sér nafnið Leó XIV
Pressan
Fyrir 3 dögum

Tvöfalt líf lyfjafræðingsins: Afhjúpa manninn á bak við eina alræmdustu vefsíðu heims

Tvöfalt líf lyfjafræðingsins: Afhjúpa manninn á bak við eina alræmdustu vefsíðu heims
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hann var myrtur árið 2021: Á mánudag ávarpaði hann morðingja sinn

Hann var myrtur árið 2021: Á mánudag ávarpaði hann morðingja sinn
Pressan
Fyrir 3 dögum

Myndband varpar ljósi á hrikalegt slys áhorfandans

Myndband varpar ljósi á hrikalegt slys áhorfandans
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sala á „gullvegabréfum“ dæmd ólögleg

Sala á „gullvegabréfum“ dæmd ólögleg