fbpx
Þriðjudagur 01.júlí 2025
Fréttir

Hernaðarsérfræðingur segir að Rússar muni ekki sigra í Bakhmut

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 15. mars 2023 05:15

Rússneskir málaliðar í Bakhmut. Skjáskot/Twitter

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vikum saman hafa hernaðarsérfræðingar og Rússar sagt að örstutt sé í að Rússar nái bænum Bakhmut á sitt vald en hart hefur verið barist um bæinn mánuðum saman og hefur orustunni verið líkt við sláturhús.

Anders Puck Nielsen, hernaðarsérfræðingur við danska varnarmálaskólann, sagði í samtali við TV2 að nú sé staðan breytt og ekkert bendi til að Rússum muni takast að ná bænum á sitt vald.

Hann sagði að staðan hafi breyst fyrir um viku þegar Úkraínumenn ákváðu loksins endalega að vera áfram í bænum og verja hann fyrir innrásarliðinu. „Það var einfaldlega ákveðið að senda fleiri hermenn til bæjarins og nú hefur þeim tekist að hrekja Rússana aftur á bak,“ sagði hann.

Hann sagðist vera hissa á  hvernig staðan hefur breyst því lengi hafi litið út fyrir að Rússar myndu ná bænum á sitt vald.

Það eru aðeins ellefu dagar síðan Yevgeni Prigozhin, eigandi Wagner-málaliðafyrirtækisins, sagði Rússum hefði svo gott sem tekist að umkringja bæinn, aðeins væri einn vegur opinn til hans.

Nielsen sagði að enginn vafi leiki á að markmið Úkraínumanna sé að veikja rússnesku hersveitirnar eins mikið og hægt er með því að valda þeim miklu tjóni í Bakhmut. „Þeir vilja einfaldlega þreyta Rússana. Með því að halda áfram að berjast geta þeir valdið Rússum miklu tjóni,“ sagði hann.

Í kvöldfréttum TV2 á þriðjudagskvöldið sagði fréttamaður stöðvarinnar í Úkraínu að samkvæmt því sem úkraínskir hermenn, sem berjast í Bakhmut, segi þá séu bardagaaðferðir Rússa óhugnanlegar. Hermenn þeirra streymi að varnarlínum Úkraínumanna og sé fjöldinn svo mikill hverju sinni að það eina sem hægt sé að gera sé að reyna að skjóta eins marga og hægt er. En vandi Úkraínumannanna er að Rússarnir eru svo margir að Úkraínumennirnir ná ekki að hlaða byssurnar sínar þegar þeir hafa tæmt þær og þá komast rússnesku hermennirnir að þeim og fella þá.  Rússar virðast því vísvitandi senda hermenn sína út í opinn dauðann og treysta á að fjöldi þeirra sé svo mikill að þeir muni að lokum yfirbuga Úkraínumenn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði og maður lenti í sjónum

Strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði og maður lenti í sjónum
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Stærsti gagnagrunnur íslenskrar tónlistar að hverfa – Hvorki ríkið né auglýsendur sýndu áhuga

Stærsti gagnagrunnur íslenskrar tónlistar að hverfa – Hvorki ríkið né auglýsendur sýndu áhuga
Fréttir
Í gær

Er forseti Kína á útleið? – Hreinsanir sagðar hafnar

Er forseti Kína á útleið? – Hreinsanir sagðar hafnar
Fréttir
Í gær

Trump með svipuna á lofti – Rak þrjá saksóknara

Trump með svipuna á lofti – Rak þrjá saksóknara
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kona sem flýði blokkina í Írabakka eftir ónæði í sjö ár – „Ég kvartaði næstum daglega í Félagsbústaði“

Kona sem flýði blokkina í Írabakka eftir ónæði í sjö ár – „Ég kvartaði næstum daglega í Félagsbústaði“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þórdís Kolbrún ómyrk í máli: „Við erum slök­ust og staðan fer versn­andi“

Þórdís Kolbrún ómyrk í máli: „Við erum slök­ust og staðan fer versn­andi“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Helga með áhyggjur af skólakerfinu – Barnið fær engar einkunnir í skólanum, bara liti

Helga með áhyggjur af skólakerfinu – Barnið fær engar einkunnir í skólanum, bara liti
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Eiríkur varð fyrir líkamsárás þegar hann var bæjarstjóri – „Ég var bara fljótur að koma mér undan þannig að það sá ekki á mér“

Eiríkur varð fyrir líkamsárás þegar hann var bæjarstjóri – „Ég var bara fljótur að koma mér undan þannig að það sá ekki á mér“