fbpx
Sunnudagur 18.maí 2025
Fréttir

Bitvargur í Grettisgötu finnst ekki

Ágúst Borgþór Sverrisson
Fimmtudaginn 22. desember 2022 15:30

Frá Grettisgötu. Mynd: Já.is. Tengist frétt ekki beint.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Héraðsdómur Reykjavíkur hvetur bandarískan ríkisborgara, sem fæddur er árið 1994, til að mæta fyrir dóm þann 25. janúar á næsta ári þegar mál gegn honum verður þingfest. Ekki hefur tekist að birta manninum ákæru og er hún því birt ásamt fyrirkalli í Lögbirtingablaðinu í dag.

Ákæran er tilkomin vegna atviks sem varð á Grettisgötu þann 5. október árið 2021. Manninum er gefið að sök að hafa hótað fjórum lögreglumönnum ofbeldi og líkamsmeiðingum, gert tilraun til að bíta einn lögreglumann, og þegar upp á lögreglustöðina við Hverfisgötu var komið er maðurinn sagður hafa bitið lögreglumann í hægri fótlegg með þeim afleiðingum að hann hlaut yfirborðsáverka.

Þess er krafist að maðurinn verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar.

„Brotið er talið varð við 106, grein almennra hegningarlaga, en hún er svohljóðandi: Hver, sem ræðst með ofbeldi eða hótunum um ofbeldi á opinberan starfsmann, þegar hann er að gegna skyldustarfi sínu eða út af því, og eins hver sá, sem á sama hátt leitast við að hindra framkvæmd slíks starfa eða neyða starfsmanninn til þess að framkvæma einhverja athöfn í embætti sínu eða sýslan, skal sæta … 1) fangelsi allt að 6 árum.“ 

Beita má sektum ef brotið telst vera vægt.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Allt á suðupunkti í Grafarvogi: „Örfáir sem við erum búin að hitta sem eru ekki brjálaðir“

Allt á suðupunkti í Grafarvogi: „Örfáir sem við erum búin að hitta sem eru ekki brjálaðir“
Fréttir
Í gær

Svona verður veðrið í dag – 19 gráður og heiðskírt í Reykjavík en það er bara byrjunin

Svona verður veðrið í dag – 19 gráður og heiðskírt í Reykjavík en það er bara byrjunin
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Boðar grundvallarbreytingar á umgjörð elsta ríkisútvarps heims

Boðar grundvallarbreytingar á umgjörð elsta ríkisútvarps heims
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Framlag ríkisins til umdeilds listaverks hefur hækkað um 10 milljónir á einu ári

Framlag ríkisins til umdeilds listaverks hefur hækkað um 10 milljónir á einu ári
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Bretar undirbúa sig undir árás Rússa

Bretar undirbúa sig undir árás Rússa
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kona réðst á pizzasendil og stal af honum símanum

Kona réðst á pizzasendil og stal af honum símanum