fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024
Pressan

Rigningin verður sífellt öfgafyllri – Hafa fundið nýja skýringu á því

Kristján Kristjánsson
Sunnudaginn 15. maí 2022 18:30

Mér finnst rigningin góð sagði einhver. Ljósmynd: DV/Hanna

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Úrkomumet hafa verið slegin hvað eftir annað á síðustu árum víða um heim. Þetta hefur haft í för með sér flóð, manntjón, eignatjón og ringulreið. Nú hafa vísindamenn fundið að það er ekki bara meira vatnsmagn sem veldur þessu.

Sem dæmi um ótrúlega úrkomu á skömmum tíma má nefna að í Durban í Suður-Afríku mældist úrkoman 300 mm á 24 klukkustundum þann 11. apríl síðastliðinn. Á aðfangadag á síðasta ári mældist úrkoman í Salvador í Nahia í Brasilíu 250 mm. Þann 4. október á síðasta ári mældist úrkoman í Rossiglione á Ítalíu 740 mm á 12 klukkustundum. Það er Evrópumet að sögn Norska ríkisútvarpsins.

Til samanburðar má nefna að mesta sólarhringsúrkoma, sem mælst hefur hér á landi, var á Kvískerjum í Öræfum þann 10. janúar 2002. Þá mældist úrkoman 293,2 mm. Þetta kemur fram á Vísindavefnum.

Og til enn frekari glöggvunar má nefna að 2019 var ársúrkoman í Reykjavík 867,8 mm að því er segir á vef Veðurstofunnar.

Ein af skýringunum á meiri úrkomu á skömmum tíma er að loftslagsbreytingarnar eigi þar hlut að máli. Hlýrra loft, meiri uppgufun og því meiri rigning. En nú hafa vísindamenn fundið enn eina breytu í þessu. Hún snýst um að breytingar hafa orðið á hvar og hvenær það rignir.

Í nýrri rannsókn, sem var unnin undir forystu Rasmus Benestad, hjá Norsku veðurstofunni, kemur fram að með því að greina fyrirliggjandi gögn sjáist að nú hafi rigning meiri tilhneigingu til að þjappa sér saman, bæði hvað varðar staðsetningu og tíma.

Vísindamennirnir rannsökuðu rigningu og regnmynstur á jörðinni frá 1950 til 2020.

Ein af niðurstöðunum er að það nú rignir meira en áður, það er að segja úrkomumagnið er meira. 2020 var úrkoman 71 milljarði tonna af vatni meir á dag en 1950.

En það vekur ekki minni athygli að rigningin er meira bundin við sömu staðin og dreifist ekki eins jafnt um jörðina og áður. Með öðrum orðum: Vot svæði verða blautari og þurr svæði verða þurrari. En þó gerist það að á sumum þurru svæðanna rignir mjög mikið inn á milli. Þetta skýrir, að minnsta kosti að hluta, þau ótrúlegu úrkomumet sem hafa verið sett á síðustu árum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 4 dögum

Nokkur ráð til að losna undan símafíkninni

Nokkur ráð til að losna undan símafíkninni
Pressan
Fyrir 4 dögum

Unglingur dæmdur í ævilangt fangelsi – Stakk ellilífeyrisþega í hjartað

Unglingur dæmdur í ævilangt fangelsi – Stakk ellilífeyrisþega í hjartað