fbpx
Mánudagur 29.apríl 2024
Fókus

Nicolas Cage staðfestir loksins villtan orðróm í fyrsta spjallþættinum í 14 ár

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Föstudaginn 22. apríl 2022 13:00

Skjáskot/YouTube

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Snákur með tvö höfuð, að stunda fjárhættuspil fyrir munaðarleysingja, nektar hellaskoðun og látbragðsleikara eltihrellir eru nokkrar af furðulegu flökkusögunum sem hafa gengið mannanna á milli um Nicolas Cage undanfarna áratugi.

Leikarinn var gestur í spjallþætti Jimmy Kimmel á dögunum. Hann kom síðast fram í spjallþætti árið 2008, það er því ansi langt síðan einhver hefur haft tækifæri til að spyrja hann út í þessar sögur.

Nicolas var í þættinum til að kynna nýju myndina sína, „Unbearable Weight of Massive Talent“, sem kom út í dag.

Jimmy Kimmel spurði hann út í söguna um að leikarinn hefði gengið inn á spilavíti með 26 þúsund krónur en gengið út með 2,6 milljónir. Nicolas staðfesti orðróminn og sagði að hann hefði farið á næsta munaðarleysingjaheimili og skellt seðlunum á borð skólameistarans og farið.

Önnur villt flökkusaga sem hefur lengi verið á kreiki um leikarann er að hann eigi snák með tvö höfuð.

„Ég gerði það, og það er skrýtið,“ sagði hann.

Hann sagði frá því hvernig hann kom til með að eignast snákinn og að hann hefði endað með að gefa dýragarði snákinn þar sem hann lifði í fjórtán ár.

Nicolas staðfesti, eða hrakkti, fleiri flökkusögur, eins og hvort hann hefði keypt helli til að geta farið nakinn í hellaskoðun og hvort tveir látbragðsleikarar hefðu beitt hann umsáturseinelti.

Horfðu á viðtalið hér að neðan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Hvað varð um leikkonuna úr Shining sem sneri baki við Hollywood? – „Ég var stjarna“

Hvað varð um leikkonuna úr Shining sem sneri baki við Hollywood? – „Ég var stjarna“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Stórbrotið atvik í Pallborði Vísis – „Þetta er fáránleg spurning“

Stórbrotið atvik í Pallborði Vísis – „Þetta er fáránleg spurning“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Forsetaframbjóðandinn sem gerðist miðill – Hannes lætur efasemdaraddirnar sem vind um eyru þjóta

Forsetaframbjóðandinn sem gerðist miðill – Hannes lætur efasemdaraddirnar sem vind um eyru þjóta
Fókus
Fyrir 4 dögum

Margrét Friðriks tekur upp nýtt nafn – „Finnst það koma með ferskan blæ inn ì mitt líf“

Margrét Friðriks tekur upp nýtt nafn – „Finnst það koma með ferskan blæ inn ì mitt líf“