

Fréttablaðið skýrir frá þessu í dag. „Netverslun náði hámarki árið 2021 en það hefur verið að hægja á netverslun síðan. Neytendur hafa ekki hætt að kaupa á netinu en það hefur hægt verulega á þróuninni frá síðasta ári,” sagði Diðrik Örn Gunnarsson, framkvæmdastjóri stafrænna miðla hjá MediaCom og stundakennari við Háskólann í Reykjavík, í samtali við blaðið.
Í mars á síðasta ári höfðu 48% verslað hjá netverslunum en 36% nú, þetta kemur fram í Netverslunarpúlsi Prósents.
Diðrik sagði að frá 2018 hafi þróunin snúist við hvað varðar kaup fólks á netinu. Þá höfðu um 55% verslað í netverslun og 66% höfðu verslað hjá erlendum netverslunum. Hann sagði að á síðustu mánuðum hafi hlutföllin á milli innlendrar og erlendrar netverslunar verið þau að íslensk netverslun hafi haft 70% vægi og erlend 30%.
Hann sagði að heimsfaraldurinn hafi neytt fólk til að versla meira á netinu. Að hans sögn þurfa íslenskir kaupmenn nú að finna leiðir til að nálgast þá neytendur sem séu að minnka kaupin hjá netverslunum.