fbpx
Laugardagur 04.maí 2024
Fókus

Netverjar misstu kjálkana í gólfið þegar hún deildi skilaboðunum frá kærastanum – „Og svona slítur maður sambandi á þremur sekúndum“

Fókus
Þriðjudaginn 25. janúar 2022 19:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eins spennandi og gaman það er að hefja nýtt ástarsamband þá er að sama bragði oft streituvaldandi reynsla að stíga út úr tilhugalífs-kúlunni sinni og kynna hvort annað fyrir fjölskyldu og vinum.

Líklega er þó til betri leið til að tækla þær aðstæður en sú sem hér var gripið til.

Kona nokkur á TikTokLily, var að fara að hitta vini nýja kærastans í fyrsta skiptið skömmu fyrir áramót. Hún deildi skjáskotum af samræðum sem hún átti við kærastann af því tilefni,  en líklega er hann orðinn fyrrverandi kærasti í dag.

Samræðurnar virtust fyrst eðlilegar. „Hey elskan, Ertu byrjuð að gera þig til fyrir kvöldið?“

Lily svaraði því að hún væri reyndar ekki búin að mála sig eða neitt þar sem hún hafi haldið að um hversdagslegan viðburð væri að ræða. Kærastinn var þó ekki sammála því.

„Já elskan, væri þér sama að klæða þig smá upp – þú ert að hitta vini mína og svona í fyrsta skiptið,“ og svo bætti hann við: „Ég vil ekki að þeir haldi að ég hafi fengið gallað eintak. Fyrstu kynni skipta máli og allt það.“

Þegar Lily las þetta svar hans varð henni óglatt og langaði eðlilega engan veginn að mæta á fyrirhugaða vinakvöldið. Ekki hjálpaði það svo til þegar hún fékk enn önnur skilaboð frá manninum.

Ugh slepptu þessu þá, annað hvort setur þú eitthvað framan í þig eða þú mætir ekki því mér er drull.“

Lily deildi þessum samskiptum á TikTok og hefur fengið mikil viðbrögð. Með myndbandinu skrifaði hún: „Skál fyrir því að vera einhleyp árið 2022″

Í athugasemdum furðar fólk sig á framkomu mannsins.

„Ég er að segja þér það að kjálkinn minn féll í gegnum alla jörðina.“ 

„Það er enginn möguleiki að hann hafi haldið að þetta væri eitthvað sem væri í lagi að segja.“ 

„Ég myndi aldrei láta svona yfir mig ganga“ 

„Bara loka á þennan eins hratt og þú getur.“ 

„Og svona slítur maður sambandi á þremur sekúndum.“

 

@xlily.brown8x here’s to being single in 2022 #fyp #foryoupage #saturdaysarefortheboys ♬ original sound – 💟

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Vinkonurnar gerðu skelfileg mistök í hópspjalli

Vinkonurnar gerðu skelfileg mistök í hópspjalli
Fókus
Fyrir 2 dögum

Typpið Júmbó var helsta stolt Bandaríkjaforseta – Vippaði því reglulega út og notaði til að þagga niður í blaðamönnum

Typpið Júmbó var helsta stolt Bandaríkjaforseta – Vippaði því reglulega út og notaði til að þagga niður í blaðamönnum
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Ég er náttúrlega helvítis aumingi eins og Íslendingar að nenna ekki að mótmæla“

„Ég er náttúrlega helvítis aumingi eins og Íslendingar að nenna ekki að mótmæla“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Mistök að veita Britney frelsi, segir geðlæknir – „Hún er stjórnlaus“

Mistök að veita Britney frelsi, segir geðlæknir – „Hún er stjórnlaus“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Hætti að drekka áfengi fyrir 5 árum

Hætti að drekka áfengi fyrir 5 árum
Fókus
Fyrir 4 dögum

Gerði ótrúlega uppgötvun á Íslandi – Segir gestgjafa hennar hafa hlegið þegar hún spurði að þessu

Gerði ótrúlega uppgötvun á Íslandi – Segir gestgjafa hennar hafa hlegið þegar hún spurði að þessu