Sjónvarpsstjörnurnar Philip Schofield og Josie Gibson voru í áfalli þegar maður, sem er sagður vera með stærsta typpi í heimi, sýndi þeim mynd af því.
Jonah Falcon kom í morgunþáttinn This Morning á dögunum til að ræða um lífið sem maður með mjög stóran getnaðarlim, sem er ekki alltaf dans að rósum að hans sögn. Hann viðurkennir að það geti vissulega verið erfitt að vera með 34,29 cm langan lim á milli leggjanna.
Í viðtalinu reynir hann að gefa Philip og Josie hugmynd um hversu stór hann sé að neðan. Hann notaði meðal annars Pringles túpu og stæðilegt eggaldin. En það er ekkert eins og að sjá manndóminn sjálfan.
Jonah tekur upp símann sinn og finnur mynd til að sýna þeim.
Viðbrögð þeirra voru kostuleg eins og sjá má í myndbandinu hér að neðan. Það byrjar á mínútu 2:52.