fbpx
Mánudagur 03.nóvember 2025
FókusKynning

Kynlíf er stórhættulegt!

Þriðjungur fólks slasast árlega við kynlífsathafnir – Hættulegasti staðurinn kemur á óvart

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 20. janúar 2016 23:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kannski ert þú ein/n af þeim sem hafa falið sogblett með trefli einhvern tíma á ævinni, eða hefur komist að því á dramatískan hátt að ryksugan er ekki heppilegur kynlífsleikfélagi (þannig tilraunastarfsemi er algengari en þú heldur).
Kynlíf er ákveðin tegund af líkamsrækt, og full ástæða til að sníða stellingarnar og stuðið eftir líkamlegu formi iðkenda. Ef þú ert kyrrsetukona á fimmtugsaldri ferðu kannski ekki að stunda kynlíf hangandi á hvolfi í kristalsljósakrónunni, frekar en þú skráir þig í Reykjavíkurmaraþon bara si svona!

Hamagangur í kynlífi hefur stundum meiðsli í för með sér, en könnun sem stefnumótavefurinn Meetville gerir árlega leiddi í ljós að á þriðjungur svarenda hlýtur meiðsl af völdum kynlífs á hverju ári. Fjörutíu prósent þeirra sem meiða sig átta sig ekki á því fyrr en daginn eftir, enda eru sæluhormón fljótandi um líkamann í kjölfar á vel heppnuðu kynlífi og dómgreind í ástarbríma kannski ekki sem best.

Samkvæmt niðurstöðum er kynlíf hættulegast á þessum stöðum:

Í sófanum
Í tröppum
Í bílnum
Í sturtunni
Í svefnherberginu
Á stól
Á eldhúsborðinu
Úti í garði
Inni á baðherbergi

Það virðist líka nokkuð algengt að fólk brjóti hluti í ástarleikjum. Í könnun Meetville svöruðu 40% því játandi. Algengast er að eftirfarandi tíu hlutir séu brotnir:

Rúm
Vínglös
Myndarammar
Stólar
Bollar
Veggir
Kommóður
Hurðir
Gluggar
Blómavasar

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
09.01.2025

Notalegur lúxus hjá Regus á Laugavegi og Síðumúla

Notalegur lúxus hjá Regus á Laugavegi og Síðumúla
Kynning
28.12.2024

Gefa bretti af flugeldum að verðmæti 300.000 krónur

Gefa bretti af flugeldum að verðmæti 300.000 krónur
Kynning
09.10.2024

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV
KynningMatur
28.07.2024

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum
Kynning
06.06.2024

Frumsýning – Nýr Škoda Kodiaq

Frumsýning – Nýr Škoda Kodiaq
Kynning
14.05.2024

Vodafone gerir tímamótasamning um internettengingar í bíla

Vodafone gerir tímamótasamning um internettengingar í bíla
Kynning
29.03.2024

„Sauna hækkar hjartsláttinn, eykur vellíðan, þú sefur betur. Saunað hreinsar allt út“

„Sauna hækkar hjartsláttinn, eykur vellíðan, þú sefur betur. Saunað hreinsar allt út“
Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika