Myndband úr búningsklefa franska landsliðsins í knattspyrnu þegar liðið atti kappi við Spánverja í úrslitaleik Þjóðadeildarinnar hefur fengið mikla dreifingu á netmiðlum.
Þar má sjá hlið á Paul Pogba, miðjumanni Frakklands og Manchester United, sem margir hafa haldið að hann ætti ekki í sér.
Í myndbandinu má sjá Pogba hvetja liðsfélaga sína til dáða og taka af skarið sem leiðtogi í búningsklefanum. Í myndbandinu krefst hann meira vinnuframlags frá liðsfélögum sínum.
„Við verðum að vera agressívir. Þetta byrjar í fremstu línu og teygir sig aftur í vörnina. Við vinnum boltann og sækjum að markinu. Og já, við munm hlaupa mikið vegna þess að þeir (Spánverjar) eru með gæða leikmenn, en það erum við líka með,“ er meðal þess sem má heyra Poba segja.
Þetta er það sem Roy Keane, fyrrverandi fyrirliði Manchester United og sérfræðingur hjá Sky Sports um enska boltann, hefur kallað eftir frá Paul Pogba hjá Manchester United.
Keane hefur sagt að Pogba leggi oftar en ekki harðar að sér þegar að hann spilar með franska landsliðinu.
J’aime trop Pogba, irrégulier mais toujours là dans les moments importants 🔥 pic.twitter.com/jzlDXZye5z
— Youssiño 🎥 (@Youssino_) October 11, 2021
Þessi eldræða Pogba virðist hafa haft tilætluð áhrif en franska liðið fór með 2-1 sigur af hólmi og tryggði sér 1. sætið í Þjóðadeildinni.