fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024
Fókus

Eymundur brotnaði saman á Kristnesi þegar hann fann vonina – „Mig langaði ekki að lifa í heljargreipum óttans“

Máni Snær Þorláksson
Sunnudaginn 10. október 2021 15:30

Myndin er samsett.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég fór að finna fyrir andlegum vanda þegar ég byrjaði í grunnskóla 1974. Ég fór að leika trúð um 12 ára aldur til að fela andlega vandann og óttann. Mig langaði ekki að lifa í heljargreipum óttans en sá enga útgönguleið úr andlegum vanda.“

Svona hefst pistill sem Eymundur L. Eymundsson, ráðgjafi og félagsliði, skrifar en pistillinn birtist á Vísi í dag í tilefni alþjóða geðheilbrigðisdagsins sem er einmitt í dag, 10. október.

Í pistlinum fjallar Eymundur um sína baráttu við andlega vandann sinn. „Til þess að lifa þurfti ég að setja upp leikrit þar sem ég var leikstjórinn. Ég var reiður yfir því hvernig mér leið, reiður í eigin garð. Herbergið er minn besti vinur. Ég veit ekki af hverju ég roðna, klökkna, hef litla einbeitingu, brothætt taugakerfi, ekkert sjálfstraust eða sjálfsvirðingu. Ég var viss um allir skömmuðust sín fyrir mig og leið líka illa innan um fjölskylduna.“

Eymundur segir í pistlinum að hann hafi leyft öðrum að gera grín að sér og tók þátt í því svo enginn gæti séð hvernig honum leið. „Ég skammaðist mín fyrir sjálfan mig. Ég leit út fyrir að fúnkera félagslega, en eftir að ég varð fimmtán sextán ára fór ég aldrei með félögum í bíó og forðaðist að taka þátt í mannamótum nema áfengi væri við hönd,“ segir hann.

„Ég var með afsakanir en auðvitað dauðlangaði mig en andlegi vandinn og óttinn hótuðu mér miskunnarlaust að ég yrði mér til skammar. Ég prófaði framhaldsskóla en entist aðeins í tvo mánuði þar sem ég gat ekki verið innan um aðra. Ég fór að vinna 16 ára og var á sama vinnustað í 20 ár.“

Brotnaði saman á Kristnesi

Árið 2005, þegar Eymundur var 38 ára gamall, var hann staddur á verkjasviði á Kristnesi í Eyjafirði eftir aðgerð sem heppnaðist ekki vel. Þar fékk hann fræðslu og bæklinga um kvíða, félagsfælni og þunglyndi. „Ég brotnaði saman það voru til lýsingarorð á mínum andlega vanda og það var heiti sem kallast geðraskanir og það var von. Bæklingarnir sögðu mína sögu og útskýrðu af hverju mér hafði liðið svona illa síðan ég var krakki með sjálfsvígshugsanir nær daglega,“ segir hann.

„Það voru ástæður fyrir myrkrinu og svartholinu sem hægt var að vinna með. Þetta var ekki mér eða neinum öðrum að kenna hvernig mér leið og óþarfi að skammast sín fyrir það frekar en ég væri með krabbamein. Ég ákvað strax á Kristnesi að leita mér hjálpar og horfa fram á veginn með opnum huga og jákvæðni að leiðarljósi.“

„Ég er svo heppinn að hafa fengið að kynnast mismunandi úrræðum“

Eymundur talar þá um það hvernig hann vann í sínum andlega vanda. „Mikið af fagfólki vinnur frábært starf undir erfiðum aðstæðum þar sem stjórnvöld hafa ekki gert nóg til að tryggja gott vinnuumhverfi. Ég er svo heppinn að hafa fengið að kynnast mismunandi úrræðum og er þakklátur þeim öllum og því fagfólki sem vinnur þar,“ segir hann.

„Frá 2005 hef ég unnið vel í mínu lífi með hjálp fagmanna og fólks með reynslu af geðröskunum. Þau úrræði sem ég hef notað eru heimilislæknir, Starfsendurhæfing Norðurlands, SÁÁ, Heilsustofnun í Hveragerði sem ég fer reglulega til. Þrisvar sinnum á geðsvið Reykjalundar sem gera samtals fjóra mánuði. Geðdeild á Akureyri í fjórar vikur 2008 og í félagskvíðahóp í framhaldi af geðdeild.“

Fræðir grunnskólanemendur

Síðan Eymundur byrjaði að vinna í sínum vanda hefur hann lagt sín lóð á vogarskálarnar í geðheilbrigðismálum. Hann útskrifaðist sem ráðgjafi Ráðgjafaskóla Íslands í desember 2009 og sem félagsliði úr Símey vorið 2016. Í pistlinum fer Eymundur yfir það sem hann hefur gert í baráttunni.

„Ég bjó í Reykjavík frá 2009 til 2012 og stundaði Hugarafl með notendum og fagfólki. Ég er einn af stofnendum Grófarinnar ásamt fleiru góðu fólki bæði fagmönnum og fólki með reynslu af geðröskunum. Ég hef farið í fimm ár með öðru góðu fólki úr Grófinni með geðfræðslu í grunn- og framhaldsskóla á Akureyri í samvinnu við forvarnarfulltrúa Akureyrarbæjar. Áður en við byrjuðum að fræða nemendur grunnskólana var farið í alla grunnskólan til að fræða kennara og starfsfólk. Það vakti mikla ánægju og fengum mikið lof fyrir en auk þess hefur geðfræðsluteymið farið í nærsveitir og víða um land.“

„Nú vitum við meira“

Hann segir að geðfræðslan hafi heppnast vel og að ungmenni séu mjög þakklát að fá fólk sem talar frá hjartanu um sína persónulegu reynslu og bjargráð. „Ég veit sjálfur að ef einhver hefði komið þegar ég var í 9. bekk og hefði sagt sína sögu og lýst einkennum myndi það hafa útskýrt mína líðan. Að geta séð manneskju með reynslu af kvíða og þunglyndi hefði gefið mér tækifæri til að takast á við sjálfan mig með faglegri aðstoð. Þannig að það er mikil vinna að baki en guð minn almáttugur hvað ég er þakklátur öllum þeim sem hafa hjálpað mér uppúr svartholinu,“ segir hann.

„Ég veit að ég er ekki fullkominn frekar en aðrir en ég reyni að gera mitt besta eins og flestir vil ég trúa. Afleiðingar af geðröskunum geta leitt af sér stoðkerfisvandamál og í dag hef ég farið í þrjár mjaðmaliðaskiptingar sömu megin. Ég glími í dag við slitgigt og króníska verki sem sést ekki alltaf en skapa líka síþreyta. Ég nefni stoðkerfisvandan svo að kerfið geri sér almennilega grein fyrir að afleiðingar af geðröskunum eru margbreytilegar sem fylgir meiri kostnaður.“

Eymundur er viss um að hann væri í fullri vinnu í dag og að hann gæti stundað sín áhugamál ef hann hefði fengið hjálp í æsku sinni. „En nú vitum við meira og gott að hafa lifað af og geta látið gott af sér leiða. Með fyrirbyggjandi íhlutun að taka á vandanum strax er ég viss um að ávinningur verði fljótur að skila sér fyrir samfélagið. Heildræn nálgun fyrir fjölskylduna er það sem þarf að vinna að og þannig sköpum við verðmæti samfélaginu til heilla. Ekki fela vandann. Góðar stundir.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Stórbrotið atvik í Pallborði Vísis – „Þetta er fáránleg spurning“

Stórbrotið atvik í Pallborði Vísis – „Þetta er fáránleg spurning“
Fókus
Fyrir 2 dögum

MeToo-byltingin nötrar eftir sláandi bakslag – Verður Weinstein laus allra mála?

MeToo-byltingin nötrar eftir sláandi bakslag – Verður Weinstein laus allra mála?
Fókus
Fyrir 2 dögum

Tók mynd af sér með nýfæddum syninum en það var mamman í bakgrunninum sem stal senunni

Tók mynd af sér með nýfæddum syninum en það var mamman í bakgrunninum sem stal senunni
Fókus
Fyrir 2 dögum

Segja þessa fæðu ekkert hafa með íslenska karlmennsku að gera – „Ertu maður eða mús?“

Segja þessa fæðu ekkert hafa með íslenska karlmennsku að gera – „Ertu maður eða mús?“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Prófaðu þetta næst þegar þú getur ekki sofið vegna fótapirrings

Prófaðu þetta næst þegar þú getur ekki sofið vegna fótapirrings
Fókus
Fyrir 3 dögum

Fékk fyrsta ofsakvíðakastið árið 2021 – „Þetta er versta tilfinning sem ég hef upplifað“

Fékk fyrsta ofsakvíðakastið árið 2021 – „Þetta er versta tilfinning sem ég hef upplifað“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Margrét Friðriks tekur upp nýtt nafn – „Finnst það koma með ferskan blæ inn ì mitt líf“

Margrét Friðriks tekur upp nýtt nafn – „Finnst það koma með ferskan blæ inn ì mitt líf“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Þjáningar Sævars – Nýtt lag og fjársöfnun

Þjáningar Sævars – Nýtt lag og fjársöfnun