Chiara Ferragni, 34 ára áhrifavaldur frá Ítalíu, er afar vinsæl á samfélagsmiðlinum Instagram en hún er með rúmlega 25 milljón fylgjendur á miðlinum. Chiara lifir hátt, að minnsta kosti miðað við myndirnar sem hún deilir sem vekja gjarnan mikla athygli.
Í vikunni vöktu þó myndir sem Chiara birti óvenju mikla athygli en á myndunum sem um ræðir má sjá hana í gegnsærri samfellu. Samfellan er hönnuð af hinni ítölsku Elsu Schiaparelli og kostar ekki nema 1.700 pund, eða um 297 þúsund íslenskar krónur.
View this post on Instagram
Bolurinn er ekki hannaður með það í huga að þau sem klæðist honum séu í brjóstahaldara, notast er við nokkurs konar hnappa úr gulli til að fela geirvörturnar og því fá myndirnar sem Chiara birti af sér í samfellunni að standa á Instagram.
Fylgjendur hennar voru afar hrifnir af samfellunni og ákváðu margir að skrifa athugasemdir við færslu hennar til að lýsa aðdáun sinni á fatnaðnum. „Ég verð að fá þess samfellu eins fljótt og auðið er,“ segir til að mynda í einni athugasemdinni.
„Mögnuð! Ég er líka mjög hrifin af nákvæmninni í henni,“ segir í annarri og á sá sem skrifar athugasemdina ábyggilega við um nákvæmnina á staðsetningu hnappanna sem rétt svo ná að fela geirvörtur áhrifavaldsins.
View this post on Instagram