Sambandsráðgjafinn Alex Scot segir fjögur merki gefa til kynna að ástarsamband sé ekki að ganga upp og að endalok þess nálgist.
Þessi merki kallast „Four Horsemen“-kenningin eða kenningin um „riddararana fjóra“. Kenningin var sett fram af John Gottman sem byggir hana á grunni vísindalegra gagna.
Alex fer yfir merkin í myndbandi á TikTok sem hefur slegið í gegn. Hún segir að „því miður“ sé samfélagið búið að „normalísera“ þessa hegðun í samböndum.
Riddararnir fjórir eru lítilsvirðing, fara í vörn, útilokun (e. stonewalling), einnig þekkt sem „silent treatment“ og gagnrýni.
Horfðu á myndbandið hér að neðan. Kannast þú við þessi merki?
@thealexscot##relationshiptopics ##relationshiplesson ##toxicrelationshipgoals ##toxiclovers ##healthyrelationshipafteratoxicone ##healthylovelife ##relationshipdonts♬ original sound – Alex Scot