fbpx
Þriðjudagur 09.september 2025
Eyjan

Jón gagnrýnir afstöðu Áslaugar og Bjarna til innflytjenda – Vill ekki nýja þjóð á Íslandi

Bjarki Sigurðsson
Mánudaginn 10. maí 2021 18:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jón Magnússon, hæstaréttarlögmaður og fyrrum þingmaður Sjálfstæðisflokksins, gagnrýnir afstöðu Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, og Áslaugar Örnu dómsmálaráðherra til innflytjenda í pistil á vefsíðu sinni.

„Í fyrradag að okkar tíma sprungu þrjár bílsprengjur við stúlknaskóla í Kabúl höfuðborg Afganistan. Sprengjunum var þannig fyrirkomið og tímastilltar, að þær gætu drepið sem flestar skólastúlkur. Fyrsta sprengjan sprakk við skólann og stúlkurnar og kennarar þustu út á götu en þá sprungu tvær til viðbótar allt gert til að drepa sem flestar,“ skrifar Jón en hann segir öfgafulla Íslamista bera ábyrgð á morðunum.

Jón vill meina að ástæðan á bakvið morðin sé tryllingsleg mannvonska og að Íslamistarnir hafi ekki viljað að stelpurnar öfluðu sér menntunar.

„Íslam er í dag og hefur verið lengi, seinfærasta barnið í bekknum hvað varðar viðurkenningu staðreynda, mannréttindi og menningu. Þannig var það ekki alltaf, en þannig er það í dag. Enn og aftur lögðu Bandaríkjamenn út í hernað í fjarlægu landi nú í Afganistan og fórnuðu mannslífum og gríðarlegum fjármunum til að breyta siðum fjarlægrar þjóðar. Það tókst ekki,“ skrifar Jón en hann segir þessa seinfæru nemendur koma til vesturlanda með hugmyndafræði og glæpi á borð við heiðursmorð, hryðjuverk og kvenfyrirlitningu.

Jón segir marga stjórnmálamenn á vesturlöndum hafa sett dulur fyrir bæði augun og neiti að horfast í augu við staðreyndir.

„Samt sem áður hefur bráð af mörgum í seinni tíð t.d. Macron, Frakklandsforseta og dönskum Sósíaldemókrötum, sem láta alla vega svo, sem þeir vilji bregðast við af skynsemi. Á sama tíma erum við, öndvert við aðrar Evrópuþjóðir, að búa til farveg til að fá sem flesta af þessum seinfærustu nemendum til okkar. Mér er óskiljanlegt, að að dómsmálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins skuli hafa gerst sérstakir talsmenn þessarar glópsku og dómsmálaráðherra skuli í ræðu og riti berjast fyrir því, að sem allra fyrst skuli skipt um þjóð í landinu,“ segir Jón að lokum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Manneskjur – ekki hugmyndafræði

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Manneskjur – ekki hugmyndafræði
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Svarthöfði skrifar: Framsókn í útrýmingarhættu – menn verða að gæta orða sinna

Svarthöfði skrifar: Framsókn í útrýmingarhættu – menn verða að gæta orða sinna
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Rétturinn til fundafriðar

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Rétturinn til fundafriðar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir að skipun Ólafs boði nýja tíma í vinnubrögðum á Alþingi – „Þarna fannst mér sleginn allt annar tónn“

Segir að skipun Ólafs boði nýja tíma í vinnubrögðum á Alþingi – „Þarna fannst mér sleginn allt annar tónn“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Átök í þingflokki Sjálfstæðismanna – gefa höfuðborgarsvæðið upp á bátinn

Orðið á götunni: Átök í þingflokki Sjálfstæðismanna – gefa höfuðborgarsvæðið upp á bátinn
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Velkominn herra skattstjóri!

Óttar Guðmundsson skrifar: Velkominn herra skattstjóri!
Eyjan
Fyrir 1 viku

Hildur hætt sem þingflokksformaður

Hildur hætt sem þingflokksformaður
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Sleggjudómar

Þorsteinn Pálsson skrifar: Sleggjudómar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Arnar Þór afhjúpar af hverju svo margir hægri menn studdu Katrínu – „Þetta var bara svona vá fyrir mér“

Arnar Þór afhjúpar af hverju svo margir hægri menn studdu Katrínu – „Þetta var bara svona vá fyrir mér“