Í vikunni var framið dularfullt morð í borginni Bethlehem, í Pennsylvaníu-ríki Bandaríkjanna. Hinn 31 árs gamli Kenneth Pickell var skotinn til bana á bílastæði í nágranna síns. Bæjarblöð í Bethlehem fjalla um málið.
Þegar lögregla kom á vettvang sat eiginkona mannsins í blóðpolli með lík mannsins í fanginu og sagði að „Josh“ hefði framið það. Sá sem hefur verið ákærður fyrir morðið var nágranni og góður vinur fórnarlambsins, Joshua Leone, 35 ára.
Kenneth Pickell, var giftur eins barns faðir, nýlega fluttur til móður sinnar í Bethlehem. Hann hafði þá vingast við Joshua Leone. Þrátt fyrir skammlíft vinasamband hafði Kenneth talað verulega vel um vin sinn, og líkt honum við bróður.
„Hann sagði einu sinni við mig að hann elskaði hann eins og bróður. Þeir tveir voru bestu vinir.“ sagði móðir Pickell og bætti við „Ég skil ekki afhverju hann var skotinn, og ég vona að ég muni aldrei þurfa að skilja það.“
Það sem vekur sérstaklega athygli við málið eru tildrög þess, en enginn virðist vita raunverulega ástæðu glæpsins.
Samkvæmt lögregluskýrslu hefur eiginkona Pickell lýst málinu á þann veg, að maður hennar hafi farið út að ganga með hundinn sinn. Þegar hann hafi átt að vera kominn til baka hafi hún séð „hlutina fara úr böndunum“ á milli Pickell og Leone.
Þá hafi hún hlaupið til félaganna og ætlað að malda í móinn. Þegar hún var kominn út til þeirra sá hún Leone í dyragætt hússins síns, haldandi á haglabyssu og skammbyssu. Hún segist þá hafa hvatt eiginmann sinn til að koma sér í burtu, sem hann og gerði, en þá hafi skothríð nágrannans hafist, sem varð Pickell að bana.
Í kjölfarið kom lögregla á vettvang og þá gekk Leone úr húsi sínu með hendur á lofti og var handtekinn.
Lögreglan hefur gefið út að málið sé enn í rannsókn, og enn séu margir þættir málsins huldir. Talið er að Leone hafi skotið félaga sinn eftir rifrildi, en sjálft umfjöllunarefni rifrildisins liggur ekki fyrir.