fbpx
Fimmtudagur 12.mars 2026
Pressan

Gerði allt brjálað þegar hann lagði til að fluttar yrðu inn konur til að auka fæðingartíðnina

Pressan
Mánudaginn 9. febrúar 2026 17:30

Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Suðurkóreskur embættismaður sem lagði til að fluttar yrðu inn inn ungar konur frá „Víetnam eða Srí Lanka“ til að auka fæðingartíðni landsins hefur verið rekinn úr flokki sínum.

Kim Hee-soo, einn æðsti embættismaður Jindo-sýslu í suðurhluta landsins, sagði á opnum íbúafundi í síðustu viku að hægt væri að koma þessum konum í samband við unga menn í dreifbýli Suður-Kóreu þar sem þær myndu giftast og eignast börn.

Suður-Kórea hefur lengi glímt við minnkandi fæðingartíðni og gera spár ráð fyrir mikilli fólksfækkun í landinu á næstu áratugum. Íbúar landsins eru 51,6 milljónir og gera svörtustu spár ráð fyrir allt að helmingsfækkun á næstu 60 árum.

Í frétt BBC kemur fram að yfirlýsing Kims, sem var sýnd í sjónvarpi, hafi ekki fallið vel í kramið og mótmæltu til dæmis yfirvöld í Víetnam ummælunum. Þá vöktu þau reiði meðal almennings og á meðal flokksfélaga og hefur Kim nú verið rekinn úr stjórnmálaflokki sínum, Demókrataflokknum.

Kim baðst afsökunar á ummælum sínum en það dugði ekki til. Lýsti hann því að athugasemdin hefði átt að varpa ljósi á fólksfækkunarvanda í dreifbýli en viðurkenndi að orðalagið sem hann notaði hefði verið óviðeigandi.

Æðsta ráð Demókrataflokksins kaus einróma að reka Kim úr flokknum, að sögn talsmanns flokksins við fréttamenn í dag.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Gúgglaði Epstein klukkustund áður en lík hans fannst – Verslaði húsgögn frekar en að gæta kynferðisglæpamannsins

Gúgglaði Epstein klukkustund áður en lík hans fannst – Verslaði húsgögn frekar en að gæta kynferðisglæpamannsins
Pressan
Fyrir 3 dögum

Margir rafbílaeigendur gera þessi mistök í kuldanum

Margir rafbílaeigendur gera þessi mistök í kuldanum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Elskar þú snjó? – Þá eiga þessi persónuleikaeinkenni líklegast við um þig

Elskar þú snjó? – Þá eiga þessi persónuleikaeinkenni líklegast við um þig
Pressan
Fyrir 3 dögum

Þetta getur gert kraftaverk fyrir líkamann

Þetta getur gert kraftaverk fyrir líkamann
Pressan
Fyrir 3 dögum

Segja samhengi vera á milli nafns fólks og útlits

Segja samhengi vera á milli nafns fólks og útlits
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ógnvekjandi ummæli heits stuðningsmanns Pútíns – Þessar borgir verða fyrstu skotmörkin

Ógnvekjandi ummæli heits stuðningsmanns Pútíns – Þessar borgir verða fyrstu skotmörkin