fbpx
Föstudagur 13.mars 2026
Pressan

Stórhættulegur brennuvargur handtekinn á Tenerife – Grunaður um að kveikja í 14 ökutækjum

Pressan
Miðvikudaginn 11. febrúar 2026 10:30

Frá Tenerife.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tuttugu og átta ára gamall maður á Adeje-ströndinni á Tenerife hefur verið handtekinn, grunaður um að kveikja í fjölmörgum ökutækjum undanfarnar vikur og valda auk þess skemmdum á húseign, er eldurinn teygði sig þangað úr ökutæki.

Canarian Weekly greinir frá.

Allar íkveikjurnar áttu sér stað að nóttu til og settu nærliggjandi heimili í hætttu. Fyrsta tilvikið átti sér stað 13. janúar þegar þrír bílar voru gjöreyðilagðir í bruna nálægt El Cerco.

Þann 17. janúar var síðan kveikt í tvinnbíl og tveimur mótorhjólum fyrir utan heimili í El Galeón. Eldurinn barst í nærliggjandi hús þar sem íbúar voru innandyra.

Nýjasta tilvikið átti sér stað snemma morguns síðasta föstudag, í Calle Hermano Pedro. Þá voru fimm bílar gjöreyðilagðir í eldi og þrír urðu fyrir skemmdum.

Maðurinn er nú í haldi lögreglu en rannsókn málsins er í fullum gangi.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Lést af sárum sínum eftir að sjúkrabílnum var stolið – Fjölskyldan krefst 5 milljarða í skaðabætur

Lést af sárum sínum eftir að sjúkrabílnum var stolið – Fjölskyldan krefst 5 milljarða í skaðabætur
Pressan
Fyrir 2 dögum

Harmleikurinn í Sviss í gær: Rannsaka hvort eldurinn hafi verið kveiktur af ásetningi

Harmleikurinn í Sviss í gær: Rannsaka hvort eldurinn hafi verið kveiktur af ásetningi