fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Kynning

Dularfull teikn á himni boða komu Hættuspilsins

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Mánudaginn 21. desember 2020 16:45

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hún hefur vart farið framhjá neinum spilaglöðum einstaklingum, endurútgáfa Hættuspilsins, eins goðsagnakenndasta borðspils sem sögum fer af á Íslandi.

„Við byrjuðum á því að endurútgefa Útvegsspilið sem líkt og Hættuspilið, hefur fengið á sig afar goðsagnakenndan blæ. Við fundum strax fyrir gífurlegum áhuga þegar Útvegsspilið kom út fyrr á árinu og hefur það selst virkilega vel. Þessi tvö spil komu út rétt fyrir jól á sínum tíma þegar það var nær óþekkt að fólk væri að eyða aleigunni í að gefa út borðspil hér á landi. En bæði þessi spil voru búin til algerlega frá grunni á Íslandi; spilunin, hönnunin, útlitið, karakterarnir og allt. Þegar spilin komu út þá seldust þau samstundis upp og hafa verið ófáanleg allar götur síðan,“ segir Stefán Sigurjónsson hjá Spilaborg.

Ódauðlegir karakterar

Hættuspilið kom út árið 1998 og seldist upp fyrstu jólin. „Síðan þá hafa misheilleg spil gengið kaupum og sölum á netinu fyrir tugi þúsunda krónur. Það var því augljóslega kominn tími til þess að gefa þetta eftirsótta spil út aftur svo ný kynslóð fái nú að kynnast þeim ömmu og Sigga sýru sem voru gerð ódauðleg af þeim Sigurjóni Kjartanssyni og Jóni Gnarr,“ segir Stefán.

„Þetta er sama gamla góða Hættuspilið, en með örlitlum endurbótum. Við gerðum peningana aðeins flottari og úr þykkari pappír og svo bættum við nýrri spilun til að bæta við nýrri vídd og auka fjölbreytnina. Þá er valdið fært í hendur spilaranna og hægt er að sleppa peningunum. En annars er þetta alveg eins og gamla Hættuspilið frá ´98.“

Hættuspilið fæst í netverslun Spilaborgar spilaborg.is og má bóka að hér sé klárlega um að ræða jólaspilið í ár.

Batman hátt á himni er

Sögusagnir herma einnig að Spilaborg muni halda úti spilabílalúgu hjá Perlunni uppi í Öskjuhlíð þar sem starfsfólk fer á milli bifreiða með posa fyrir þá sem vilja tryggja sér skemmtileg spil fyrir jólahátíðina. „Við hefjum leika á þriðjudaginn, en það fer ekki á milli mála hvenær við erum á staðnum með sendibílana fulla af glæsilegum spilum. Um leið og við mætum á svæðið munum við varpa ljóskastara upp í himininn með Batman merkinu. Þetta mun ganga mjög skilvirkt fyrir sig, engin þörf á bílastæðum eða veseni. Þegar þú sérð Batmanmerkið yfir Öskjuhlíðinni þá einfaldlega mætirðu á bílnum og kaupir spil í gegnum bílgluggann.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum