Knattspyrnuáhugamenn á Englandi fá loksins að mæta aftur á völlinn í næstu viku en eftir nýjustu fréttirnar eru margir þeirra ekki sáttir. DailyMail fjallar um málið.
Enskir miðlar greina nú frá því að einungis 1000 manns fái að mæta á völlinn í stað 2000 eins og auglýst hefur verið. Í raun mega félögin taka á móti 2000 manns en þau eru beðin um að minnka þá tölu um helming til að byrja með.
Bournemouth er eitt þeirra félaga sem taka vel í þetta og ákvað félagið strax að leyfa aðeins 1000 manns að mæta. Sú ákvörðun hefur ekki vakið mikla lukku hjá mörgum stuðningsmönnum félagsins. „Ég er virkilega vonsvikinn,“ sagði einn stuðningsmaður sem nær ekki að fá miða á völlinn vegna takmarkananna.
Þrátt fyrir þetta er félagið bjartsýnt og horfir á jákvæðu hliðina. „Við erum bara spennt að fá stuðningsmennina aftur,“ segir talsmaður félagsins. „Þetta eru 1000 aðdáendur og það er miklu meira en það sem við höfum fengið síðan í mars,“ bætti talsmaðurinn við en leikið hefur verið án áhorfenda síðan í vor á Englandi.