Nýlega hittust þau Dúa og Lance í fyrsta skipti í 9 mánuði en þau deildu myndbandi af endurfundinum á YouTube-rásinni. „Við fáum loksins að vera saman,“ segir Lance í upphafi myndbandsins áður en hann fer flýgur frá Boston til Keflavíkur. „Mér þykir það svo leitt ef myndavélin hristist, ég er svo stressuð,“ segir Dúa þegar hún bíður eftir honum í bílnum á Keflavíkurflugvelli. „Ég mun reyna að taka allt upp en ég er svo stressuð.“
Á leiðinni úr Keflavík stoppuðu þau í hrauninu við Grindavík og léku sér þar saman. „Ég hefði átt að vera í öðrum skóm,“ segir Lance eftir að hafa hlaupið um í hrauninu. Eftir það fara þau að skoða hveri. „Svona heldurðu á þér hita á Íslandi,“ segir Lance og hitar hendurnar sínar yfir gufunni.
https://www.instagram.com/p/CFaGuf0hDOV/
Þegar þau komu heim gaf Lance henni Dúu gjafir. Hann gaf henni meðal annars fullt af súru nammi og AirPods heyrnatól. Þá gaf hann henni einnig uppáhalds myndina hennar af þeim saman í fallegum ramma. Þá sýna þau einnig ferð sína í sumarbústað þar sem þau njóta lífsins í heita pottinum.
https://www.instagram.com/p/CFScZCDCRuV/
Ásamt því að halda uppi YouTube-rásinni saman eru þau með Instagram-síðu þar sem þau deila myndum af sér saman. Instagram-síðan þeirra er með tæplega fimm þúsund fylgjendur.
Myndbandið má sjá hér fyrir neðan: