Fréttamaðurinn fyrrverandi, Breki Logason gerði sér ferð á Akranes í gær til að sjá sína menn í Val heimsækja Skagamenn í efstu deild karla. Breki er harður stuðningsmaður Vals og sést á allflestum leikjum.
Með Breka í för var dóttir hans en feðginin horfðu á Val vinna sinn áttunda sigur í röð í deildinni en það var ekki það sem stóð upp úr í ferðinni.
,,Fór með dóttur mína uppá Skaga að horfa á Valsmenn spila við ÍA. Tókum sérstaklega eftir því hvað krakkarnir ÍA-megin voru dónalegir. Gera lítið úr andstæðingum og setja puttannn á loft. Eftir að hafa setið fyrir aftan ÍA bekkinn skil ég þetta betur,“ skrifar Breki á Twitter í gær.
Hann segir að Jóhannes Karl Guðjónsson þjálfari ÍA og aðrir á varamannabekk Skagans hafi hagað sér illa. ,,Hvernig þjálfari ÍA og aðrir á bekknum haga sér er til háborinnar skammar. Eitt er að sýna passion og hvetja lið sitt áfram – þetta er bara dónaskapur og þeim öllum til minnkunar.“
Breki minnir Skagamenn á það að fullorðnir þáttakendur leiksins séu fyrirmyndir fyrir börn sem koma og horfa á. „Það eru börn að fylgjast með og þetta eru fyrirmyndir. Standard takk.“
Valur vann 4-2 sigur og er forskot liðsins á toppi deildarinnar nú átta stig þegar liðið á átta leiki eftir.
Fór með dóttur mína uppá Skaga að horfa á Valsmenn spila við ÍA. Tókum sérstaklega eftir því hvað krakkarnir ÍA-megin voru dónalegir. Gera lítið úr andstæðingum og setja puttannn á loft. Eftir að hafa setið fyrir aftan ÍA bekkinn skil ég þetta betur … 1/2
— Breki Logason (@brelog) September 17, 2020
2/2 Hvernig þjálfari ÍA og aðrir á bekknum haga sér er til háborinnar skammar. Eitt er að sýna passion og hvetja lið sitt áfram – þetta er bara dónaskapur og þeim öllum til minnkunar. Það eru börn að fylgjast með og þetta eru fyrirmyndir. Standard takk.
— Breki Logason (@brelog) September 17, 2020