fbpx
Laugardagur 05.júlí 2025
Pressan

Annar svartur rammi TIME í sögunni markar döpur tímamót – 200.000 látnir í Bandaríkjunum

Heimir Hannesson
Föstudaginn 11. september 2020 09:12

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tímaritið TIME birti í gær forsíðu næstu útgáfu af vikuritinu. Á forsíðunni er rauði ramminn sem hefur einkennt hefur TIME og forsíður þess í 97 ár horfinn og svartur rammi kominn þess í stað. Er þetta í annað sinn í sögunni sem ritstjórn TIME tekur upp á þessu. Það fyrra var í kjölfar 11. september 2001. Fyrir réttum 19 árum síðan í dag.

Forsíðan að þessu sinni markar döpur tímamót í sögu Bandaríkjanna. 200.000 Bandaríkjamenn eru nú látnir af völdum Covid-19. Að sögn fréttar Time um málið eru það þrefalt fleiri en létust í Víetnamstríðinu og jafn margir og búa í Salt Lake City. Dauðsföllin í Bandaríkjunum eru fleiri en í nokkru öðru ríki heims.

Forsíðan að þessu sinni er hönnuð af listamanninum John Mavroudis sem studdist við gögn frá gagnabanka Johns Hopkins sjúkrahússins er hann handskrifaði hvern einasta dag tölu látinna. Myndin er þannig tímalína sem hægt og rólega telur upp í 200.000. Myndin er svo römmuð inn, sem fyrr segir, með svörtum ramma í annað sinn í sögunni. „Ég vona að þessi forsíða verði vakning fyrir þá sem eru ónæmir fyrir þessum hörmungum,“ sagði Mavroudis í viðtali við TIME. „Vísindin og almenn skynsemi eru svarið við krísunni.“

Fyrirsögn forsíðunnar er, á móðurmálinu, „An American Failure.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Julian McMahon látinn

Nýlegt

Kyle Walker í Burnley
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hryllingur í Þýskalandi – Mætti með hníf í vinnuna og réðst á starfssystkini

Hryllingur í Þýskalandi – Mætti með hníf í vinnuna og réðst á starfssystkini
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Ávanabindandi“ ástarsambönd Clint Eastwood rakin í nýrri ævisögu: „Ég ætlaði að gera eins og mér sýndist“

„Ávanabindandi“ ástarsambönd Clint Eastwood rakin í nýrri ævisögu: „Ég ætlaði að gera eins og mér sýndist“
Pressan
Fyrir 4 dögum

Miðinn í ruslinu breytti lífi hennar

Miðinn í ruslinu breytti lífi hennar
Pressan
Fyrir 4 dögum

Hetjuleg björgun föður – Stökk á eftir dóttur sinni sem féll frá borði

Hetjuleg björgun föður – Stökk á eftir dóttur sinni sem féll frá borði
Pressan
Fyrir 4 dögum

Flugfreyja segir að flugáhafnir stundi kynlíf í flugstjórnarklefanum – „Vélin er á sjálfstýringu“

Flugfreyja segir að flugáhafnir stundi kynlíf í flugstjórnarklefanum – „Vélin er á sjálfstýringu“
Pressan
Fyrir 5 dögum

Harmleikur á Englandi: 12 ára drengur látinn eftir samfélagsmiðlaáskorun

Harmleikur á Englandi: 12 ára drengur látinn eftir samfélagsmiðlaáskorun