Njarðvík tapaði nokkuð óvænt í 2.deild karla í kvöld er liðið mætti Þrótt Vogum á heimavelli.
Njarðvík tapaði seinasta leik sínum 3-0 gegn Kórdrengjum og þurftu að sætta sig við 0-1 tap í kvöld.
Haukar töpuðu sínum fyrsta leik á sama tíma er liðið mætti Selfoss. Selfoss spilaði með tíu menn frá 23. mínútu en tókst að vinna 2-1 sigur.
Fjörugasti leikur kvöldsins var þá í Dalvík þar sem KF vann góðan 4-2 útisigur á Dalvík/Reyni.
Hér má sjá öll úrslit kvöldsins.
Njarðvík 0-1 Þróttur V.
0-1 Viktor Smári Segatta
Haukar 1-2 Selfoss
1-0 Tómas Leó Ásgeirsson
1-1 Ingvi Rafn Óskarsson
1-2 Hrvoje Tokic
Dalvík/Reynir 1-4 KF
1-0 Borja Lopez
1-1 Theodore Wilson
1-2 Hrannar Snær Magnússon
1-3 Theodore Wilson
1-4 Oumar Diouck
2-4 Borja Lopez
Völsungur 2-2 Fjarðabyggð
Víðir 0-3 ÍR