fbpx
Sunnudagur 16.nóvember 2025
433Sport

Bannað að skora á hvíta lakinu ef konan er með kvef

Hörður Snævar Jónsson
Sunnudaginn 26. apríl 2020 17:27

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fram kemur í þýskum fjölmiðlum að leikmenn þar í landi gætu þurft að spila með grímu, þegar deildin fer aftur af stað. Stefnt er á að hefja leik í þýsku deildinni þann 9 maí en í minnisblaði frá ríkisstjórninni kemur þetta fram.

Þar segir að leikmenn gætu þurft að spila með grímur, ef gríma dettur af leikmanni þarf að stöðva leik. Leikmönnum verður bannað að snerta grímurnar.

Þá segir einnig að leikmönnum verði bannað að stunda kynlíf ef rekkjunautur þeirra er með minnstu einkenni, svo sem kvef eða annað slíkt.

Þjóðverjar hafa náð góðum tökum á kórónuveirunni og vilja hefja leik sem fyrst. Engir áhorfendur verða á vellinum í Þýskalandi þegar deildin fer af stað á nýjan leik.

Ljóst er að það gæti orðið erfitt fyrir knattspyrnumenn að spila með grímu enda erfiðara að anda að sér súrefni.

Alfreð Finnbogason leikur með Augsburg í efstu deild og Samúel Kári Friðjónsson með Paderborn í efstu deild þar í landi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Celtic finnur loks stjóra

Celtic finnur loks stjóra
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Svarar fyrir meint framhjáhald – Segist ekki hafa verið að stinga undan konunni

Svarar fyrir meint framhjáhald – Segist ekki hafa verið að stinga undan konunni