Ungur karlmaður leitar til Dear Deidre, kynlífs- og sambandsráðgjafa The Sun. Hann var að skoða klámsíðu eitt kvöldið og var heldur betur hissa þegar hann sá kunnuglegt andlit.
„Ég var að skoða klámsíðu þegar ég sá myndband af kærustu minni. Hún var klædd sem hjúkka og var í trekanti með tveimur karlmönnum,“ segir maðurinn.
„Ég er 26 ára og hef verið með kærustu minni, sem er 25 ára, í hálft ár.
Snemma í sambandinu sagði hún mér frá fortíð sinni. Hún sagðist hafa verið frekar villt og hafa sofið hjá nokkrum skrýtnum og lævísum náungum.
Ég sagði að það væri í góðu lagi og ég meinti það. Ég er ekki óöruggur varðandi eitthvað sem gerðist í fortíðinni.
Hún er gullfalleg og ég er mjög stoltur að halda í hönd hennar þegar við erum meðal almennings.“
Maðurinn segir myndbandið ekki trufla sig en það er annað sem truflar hann.
Eina kvörtunin mín er sú að kynlífið okkar er frekar „vanilla“ og leiðinlegt. Ég hef gert mitt besta að krydda upp á kynlífið með mismunandi stellingum og kynlífsleikföngum.
Ég keypti kynþokkafull nærföt handa henni á afmælisdaginn. Ég hélt að hún myndi elska það en hún var ekki hrifin. En við komumst yfir það.
Síðan eitt kvöldið var hún úti með vinum sínum og ég fann hana á klámsíðunni. Ég spurði hana út í myndbandið daginn eftir og hún viðurkenndi strax að þetta væri hún. Hún sagði að annar maðurinn væri einn af þessum skrýtnu gaurum úr fortíðinni, en hinn gaurinn hafði hún aldrei hitt áður fyrir þetta.
Eins og ég segi, það sem gerðist í fortíðinni er í fortíðinni. En ég er hneykslaður að hún er tilbúin að gera allt þetta með gaur sem hún var nýbúin að kynnast, en gerir aldrei neitt kinkí með mér.
Kærastan mín sagði að hún hefur breyst mikið síðan hún var í myndbandinu. Núna gerir hún aldrei neitt í rúminu sem henni líður ekki fullkomlega vel með, ekki fyrir neinn.
Ég elska hana og virði það sem hún segir, en mér líður samt eins og ég sé í öðru sæti. Ég er óviss um samband okkar og mig langar að breyta því.“
Deidre segir:
„Það sem þú þarft að gera er að breyta því hvernig þú hugsar. Kærastan þín hefur verið mjög hreinskilin við þig og hún virðist vera kona sem þú getur treyst. Fortíðin er fortíðin og hún hefur greinilega farið í gegnum erfiða tíma.
Já hún gerði mistök en það gerði hana að þeirri manneskju sem hún er í dag. Það gerði henni að konunni sem þú elskar. Gleymdu kynlífsleikföngum og kynþokkafullum nærfötum. Einbeittu þér að því að sýna henni að þú elskir hana og þú tekur fortíð hennar í sátt.“