fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024
Fókus

Hafsteinn opnar sig um átakanlega tíma: Hrundi rétt fyrir stóra kvöldið – „Ég elskaði hann of mikið“

Tómas Valgeirsson
Mánudaginn 16. desember 2019 08:00

Mynd: Eyþór Árnason

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Listamaðurinn Hafsteinn Þór Guðjónsson hefur glatt ófáa landsmenn síðustu vikur með dansfélaga sínum, Sophie Louise Webb. Tvíeykið var nýlega valið í hóp þeirra sem komust áfram í annarri seríu Allir geta dansað, þar sem listamenn keppast um stóra titilinn og sigurbikarinn. Tíu pör taka þátt og stendur eitt par eftir sem sigurvegari í lok janúar á næsta ári.

Hafsteinn, sem þekktur er af flestum sem tónlistarmaðurinn og plötusnúðurinn Haffi Haff, hefur lítið verið í sviðsljósinu undanfarin ár, en mikið bar á honum í fjölmiðlum í nokkur ár eftir að hann tók þátt í undankeppni Eurovision með Wiggle Wiggle Song. Í samtali við DV tjáir Haffi sig meðal annars um ástina, týndu árin, mikil tímamót, átakanleg veikindi, drifkraftinn og nýju plötuna sem hefur verið í vinnslu svo árum skiptir.

Þetta er brot úr ítarlegra viðtali sem finna má í helgarblaði DV

Lengi hefur Hafsteinn verið kenndur við ýmsa titla; tónlistarmaður, framleiðandi, hönnuður, tískuráðgjafi og ekki síst danshöfundur, en hann hefur marga fjöruna sopið þegar kemur að þeirri listgrein. Svo dæmi séu nefnd tekur hann reglulega samkvæmisdans með eldri borgurum á föstudögum á Hrafnistu. Nýlega hefur hann þó þurft að leggja þá tómstundaiðju á hilluna um tíma vegna dansæfinga fyrir beina útsendingu.

Hafsteinn lýsir aðkomu sinni að sjónvarpsþáttunum Allir geta dansað sem stressandi, spennandi en fyrst og fremst sem draumi líkri og meira krefjandi í smáatriðum dansspora en hann er vanur. Hann gæti heldur ekki verið ánægðari með dansfélaga sinn, Sophie Louise, sem hann segir mikla hvatningu í lífinu þessa dagana. Hafsteinn segir undanfarnar vikur hafa verið taumlausa keyrslu í tengslum við æfingar og tökur á þættinum en þetta hefur ekki stoppað hann frá því að taka að sér fleiri verkefni í miðri ös.

Hafsteinn segir að þetta sé fylgihlutur þess að gera miklar kröfur til sjálfs sín og ef viðkomandi slekkur ekki reglulega á líkama sínum, mun líkaminn sjá um að gera það fyrir hann – gjarnan á versta tíma.

Magaverkir í beinni

„Ég er þannig að ég er mjög harður á sjálfan mig. Ég vil alltaf standa mig vel til að búa til gott „sjó“. Ef maður stendur sig ekki glæsilega eiga skilaboðin í dansinum til að týnast. Eins mikið og fólk meinar vel þegar það hrósar manni rétt á undan framkomu á sviði og segir að maður eigi eftir að negla þetta, eða „Þú ert bestur“, þá hefur það öfug áhrif á mig,“ segir Hafsteinn og bætir við að hann hafi ekki verið nógu ánægður með frammistöðu sína í annarri viku keppninnar.

„Fyrsta vikan gekk fullkomlega. Það var algjör guðsgjöf. Þótt við gerðum kannski ekki allt fullkomið samkvæmt sumum reglubókum, þá gat þetta ekki gengið betur í mínum huga. Önnur vikan var aftur á móti allt annað en fullkomin. Ég var líkamlega og andlega kominn í þrot,“ segir Hafsteinn og heldur áfram.

„Í annarri vikunni hrundi líkaminn. Ég setti svo mikla pressu á sjálfan mig, að vilja standa mig virkilega vel þessar vikur. Æfingar voru afar strembnar og ofan á það fékk ég mjög slæmar fréttir um einstakling sem er mér nákominn og síðar meir matareitrun, ofan á önnur verkefni sem ég gat ekki sagt nei við. Nokkrum dögum fyrir tökur var líkami minn gjörsamlega búinn. Ég skuldaði honum svefn og maginn var kominn í rugl.“

Hafsteinn segist sem betur fer hafa náð sér aftur á strik þegar kom að aðalkvöldinu, þótt litlu hafi munað í ljósi þess að hann var kastandi upp og svefnvana kvöldið áður. „Sýningin verður alltaf að halda áfram, eins og sagt er, og ég vissi að þetta myndi allt ganga upp á endanum,“ segir hann. „Helsti vandi minn þetta kvöld var sá að ég þurfti svo mikið að prumpa á meðan ég var í beinni útsendingu. Ég gerði mitt besta til að hugsa um aðra hluti en þarna fann ég að maginn var eitthvað að stríða mér.“

Að sögn Hafsteins snýst mergur málsins um það að standa sig vel fyrir dansfélaga sinn. „Þessi keppni snýst um að hafa gaman. Ég dýrka Sophie og mig langar að gera hana stolta og vera henni besti dansfélagi sem ég get verið,“ segir Hafsteinn.

„Ég elskaði hann of mikið“

Tónlistarmaðurinn og dansarinn segist vera ákaflega ánægður með tímasetningu danskeppninnar. Tímarnir hafa verið krefjandi hjá Hafsteini síðastliðin misseri, meðal annars vegna erfiðra sambandsslita og kveið hann um tíma fyrir að eyða jólunum einhleypur. Í sex og hálft ár var Hafsteinn í sambandi með landslagsarkitekt að nafni Julian. Þeir voru lengi í fjarsambandi og stóð til að þeir rugluðu saman reytum í Seattle. Hafsteinn segist hafa verið kominn með annan fótinn inn í hjúskapinn þegar sambandið slitnaði. Hafsteinn tjáir sig um þetta viðkvæma mál og segir að heilt yfir hafi þeim Julian ekki ætlað að vera saman.

„Ég hef oft séð það gerast, þegar fólk gefur upp hluta af sjálfu sér fyrir aðra. Mig langaði að sjá hann ganga langt og sinna sínu vel. Ég vildi ekki að hann aðlagaði sitt líf að mínu, en með tímanum leið mér eins og ég hefði ekki lengur fengið að vera ég. Mér leið eins og stöðugt væri verið að dæma mig,“ segir Hafsteinn og kemur með tvö sambandsráð.

„Þegar þér líður eins og hinn einstaklingurinn meti þig ekki eins og þú ert, skaltu forða þér strax. Þú verður að treysta eðlishvöt þinni. Ég vissi það fyrir meira en ári að þetta samband væri ekki að ganga, en ég neitaði að sleppa takinu. Ég elskaði hann of mikið. Ég hélt áfram að hlaupa með hausinn beint að veggnum áður en ég áttaði mig á því að þetta var ekki að ganga. Það sem ég lærði af þessu var að missa ekki sjónar á sjálfum mér og ég ráðlegg fólki að fórna aldrei sínum markmiðum eða gefa drauma sína upp á bátinn fyrir aðra,“ segir Hafsteinn.

„Og ráð mín til þeirra sem hyggjast hætta með einhverjum eru þessi: ef þú ætlar að slíta sambandi við einhvern, vertu viss um að það snúist um þig og þínar forsendur, en ekki hinn einstaklinginn. Reyndu að lyfta hinum einstaklingnum upp, án þess að detta í einhver tóm hrós. Þú þarft að fara varlega með tilfinningar manneskjunnar, því þú ert hvort sem er að rústa þeim.“

Hafsteinn segist ekki sjá fram á að hann íhugi langtímasamband á næstunni, jafnvel endanlega. „Ég veit ekki einu sinni hvað mér finnst um sambönd lengur. Hvað þýðir það yfirhöfuð að vera ástfanginn? Þarf það að eiga eingöngu við um rómantík?“ spyr hann. „Ég er í öðruvísi sambandi þessa dagana, sem er við sjálfan mig. En fyrir utan það hef ég heilmikla ást til að gefa, hvort sem það er fjölskyldu minni, foreldrum eða vinum mínum. Ástin er alls staðar í lífi mínu.“

Lestu viðtalið við Hafstein í nýjasta helgarblaði DV.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Sophia Bush kemur út úr skápnum – Blæs á kjaftasögurnar um hvernig nýja sambandið byrjaði

Sophia Bush kemur út úr skápnum – Blæs á kjaftasögurnar um hvernig nýja sambandið byrjaði
Fókus
Fyrir 2 dögum

Svona eiga þau saman – Ekki aðeins æðislegir elskhugar heldur líka mjög góðir vinir

Svona eiga þau saman – Ekki aðeins æðislegir elskhugar heldur líka mjög góðir vinir