fbpx
Miðvikudagur 14.maí 2025
FókusKynning

Flutningaþjónustan: Metnaður og afburðaþjónusta

Kynning

Útvega einnig mannskap í skammtímaverkefni.

Ritstjórn DV
Föstudaginn 14. júlí 2017 13:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Flutningaþjónustan ehf. var stofnuð árið 2004 en fyrirtækið byggir á dýrmætri reynslu eigandans Jóns Birgissonar sem hefur starfað í flutningabransanum frá 1989. Að sögn Jóns er fyrirtækið traust flutningaþjónusta með fullgilt rekstrarleyfi. „Hjá fyrirtækinu starfa aðeins reyndir menn sem hafa metnað til að veita afburðaþjónustu,“ segir hann.

Fyrirmyndar fyrirtækjaþjónusta

„Mörg fyrirtæki þurfa ekki á flutningaþjónustu að halda á hverjum degi,“ segir Jón. „En þegar þörfin skapast, skiptir máli að verkefnið sé í höndum aðila sem er starfi sínu vaxinn og traustsins verður. Hvort sem um er að ræða tilfallandi sendingar eða flutning á höfuðstöðvum fyrirtækisins er mikilvægt að hafa fagmennsku að leiðarljósi. Þar kemur einmitt Flutningaþjónustan til skjalanna!“ segir hann brosandi.

Tímabundnar og langtímalausnir

„Við útvegum starfsmanninn sem vantar bara stundum. Hjá okkur starfa einungis harðduglegir menn, laghentir, úrræðagóðir og fljótir að komast inn í ný verkefni. Það fær enginn vinnu hjá Flutningaþjónustunni sem ekki hefur hreint sakavottorð og góðan ökuferil.

Eitt aðalmarkmið okkar er hagkvæmni. Ef þig vantar starfsmann tímabundið inn á lager, eða íhlaupamann í nokkra klukkutíma, hafðu þá samband við okkur. Við getum sett saman húsgögn, fært til innréttingar og stillt upp ef þörf er á. Við þrífum, göngum frá, stillum upp og gerum það sem til fellur í sambandi við flutninga – já, og meira til!“

Heildarlausnir og hagkvæmni

Jón segir að Flutningaþjónustan geti einnig séð um heildarlausn á flutningamálum fyrirtækja. „Það færist í vöxt í íslensku viðskiptalífi að fyrirtæki kjósi að láta verkþætti sem ekki tengjast daglegum rekstri fyrirtækisins, t.d. vörudreifingu, frá sér og fela þau sérhæfðum fagaðilum. Hvort sem um er að ræða vörudreifingu eða aðföng erum við með réttu lausnina fyrir þitt fyrirtæki.

Við hvetjum ykkur til þess að hafa samband og kanna hvað við höfum upp á að bjóða,“ segir Jón að lokum.

„Þvílíkir fagmenn“

Viðskiptavinir Flutningaþjónustunnar eru ánægðir með þjónustu fyrirtækisins eins og til dæmis má sjá á ummælum þeirra á Facebook-síðu fyrirtækisins. Hún Eydís Björk Guðmundsdóttir er til dæmis ekkert að skafa utan af því að hún er himinlifandi með Flutningaþjónustuna:

„Þvílíkir fagmenn. Sinntu erfiðu verki með bros á vör. Svo sannarlega þess virði að fá þá á staðinn að pakka búslóðinni í gám. Það er ekki ofsagt hversu mikils virði það er að fá einstaklinga sem vita hvað þeir eru að gera. Það sparaði okkur tíma, erfiði og hausverkinn yfir hvernig átti að raða inn í gáminn. Ég hafði nú ekki trú á því í byrjun að allt kæmist fyrir en þeir brilleruðu alveg og fylltu hann í topp. Mæli svo sannarlega með þeim.“

Flutningaþjónustan ehf., Dugguvogur 17–19, 104 Reykjavík, Sími 555 1100
www.flutningathjonustan.is
Flutningaþjónustan á facebook

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
06.06.2024

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn
Kynning
06.06.2024

Frumsýning – Nýr Škoda Kodiaq

Frumsýning – Nýr Škoda Kodiaq
Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 
Kynning
27.03.2024

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“
Kynning
26.01.2024

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7
Kynning
23.01.2024

Tífalt meira magn af „bótoxi jurtaríkisins“ í nýju serumi frá Nivea

Tífalt meira magn af „bótoxi jurtaríkisins“ í nýju serumi frá Nivea