fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024
Pressan

Grænmetisæta stefnir Burger King

Kristján Kristjánsson
Fimmtudaginn 21. nóvember 2019 05:01

Borgarar frá Burger King. Mynd:Wikimedia Commons

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Phillip Williams, sem býr í Miami í Bandaríkjunum og er grænmetisæta, hefur stefnt hamborgarakeðjunni Burger King fyrir rétt. Ástæðan er að hann er ósáttur við að kjötlausir hamborgarar séu grillaðir á sama grilli og hefðbundnir hamborgarar úr kjöti.

Williams segist hafa keypt sér Impossible Whopper, sem er kjötlaus hamborgari, í bílalúgu hjá Burger King í Atlanta og hafi hann verið grillaður á sama grilli og hamborgarar úr kjöti. Hann telur að margir veitingastaðir keðjunnar geri viðskiptavinum ekki nægilega ljóst að kjötlausir hamborgarar séu grillaðir á sama grilli og venjulegir hamborgarar.

Talsmenn Burger King hafa ekki viljað tjá sig um málið. Á heimasíðu fyrirtækisins kemur fram að viðskiptavinir geti beðið um að fá kjötlausa borgara grillaða sér. Impossible Whopper er síðan lýst sem „100 prósent Whopper, 0 prósent kjöt“.

Fyrirtækið Impossible Foods, sem framleiðir borgarana, segir að þeir séu hugsaðir fyrir þá sem vilja innbyrða minna af dýraprótíni en sé ekki sérstaklega beint að grænmetisætum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 dögum

Ólýsanleg sjón blasti við 10 ára dreng þegar hann vaknaði – Allir í fjölskyldunni látnir

Ólýsanleg sjón blasti við 10 ára dreng þegar hann vaknaði – Allir í fjölskyldunni látnir
Pressan
Fyrir 3 dögum

Harmleikur í Svíþjóð – Tvö börn fundust látin

Harmleikur í Svíþjóð – Tvö börn fundust látin
Pressan
Fyrir 4 dögum

Sanna sagan á bak við Netflixþættina Baby Reindeer sem hafa slegið í gegn – Hvað varð um Richard og Mörthu og hver er hin raunverulega Martha?

Sanna sagan á bak við Netflixþættina Baby Reindeer sem hafa slegið í gegn – Hvað varð um Richard og Mörthu og hver er hin raunverulega Martha?
Pressan
Fyrir 4 dögum

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið
Pressan
Fyrir 5 dögum

Leynidagbók grunnskólakennarans kom upp um níðingsverk hennar

Leynidagbók grunnskólakennarans kom upp um níðingsverk hennar
Pressan
Fyrir 5 dögum

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“