fbpx
Þriðjudagur 17.mars 2026
Fréttir

Tveggja ára drengur hvarf á dularfullan hátt fyrir 26 árum – Nú hafa orðið straumhvörf í rannsókn málsins

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 26. júlí 2017 11:25

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögreglan telur að hún hafi loksins komist eitthvað áleiðis við rannsókn á 26 ára gömlu máli er varðar hvarf lítils drengs en hann var aðeins tveggja ára þegar hann hvarf á dularfullan hátt. Móðir hans hefur gefið upp alla von um að hann finnist á lífi en lögreglan vinnur enn að rannsókn málsins.

Sandali og gamall og lúinn leikfangabíll geta verið lykillinn að því að leysa málið og til að varpa ljósi á örlög Ben Needham, sem hvar á grísku eyjunni Kos 1991. Breska lögreglan hefur nú fundið blóð á sandalanum og leikfangabílnum.

Málið var að vissu leyti Madeleine McCann mál tíunda áratugarins enda álíka dularfullt og hvarf Madeleine McCann úr sumarleyfisíbúð í Algarve í Portúgal fyrir 10 árum.

Needham fjölskyldan var í heimsókn hjá ættingjum sínum á eyjunni Kos í júlí 1991. Ben var að leik við heimili afa síns og ömmu þar þann 24. júlí þegar hann hvarf á dularfullan hátt. Ekkert hefur spurst til hans síðan.

Margar kenningar hafa verið á lofti í gegnum árin um örlög hans og mörg vitni hafa gefið sig fram og sagt að þau hafi séð hann. Ef Ben er enn á líf er hann orðinn 28 ára en móðir hans hefur gefið upp alla von um að hann finnist á lífi.
Í kjölfar hvars Madeleine McCann hófst rannsókn á hvarfi Ben á nýjan leik en bresk stjórnvöld veittu fjármunum til rannsóknarinnar. Hún hófst á nýjan leik 2011 en þá var mikið magn af skjölum frá grísku lögreglunni þýtt yfir á ensku.

Síðastliðið haust fór hópur breskra lögreglumanna til Kos til að leita að vísbendingum varðandi hvarf Ben. Þar gaf vitni sig fram við þá og sagðist telja að vinur hans, Konstantinos Dino Barkas, hafi hugsanlega orðið Ben að bana með gröfu sinni. Barkas lést á síðasta ári af völdum krabbameins. Vinur hans segir að málið hafi lengi þjakað Barkas og lagst mjög þungt á hann.

Í upphafi rannsóknar grísku lögreglunnar beindist athyglin að Barkas og sagði vinur hans bresku lögreglunni að Barkas hefði verið mjög óstyrkur eftir að lögreglan yfirheyrði hann.

Kenning lögreglunnar er að Barkas hafi óvart orðið Ben að bana og hafi síðan falið lík hans. Þetta hefur þó ekki verið hægt að sanna og lík Ben hefur heldur ekki fundist.

2012 fannst gamall leikfangabíll nærri heimili afa og ömmu Ben. Vitað er að Ben átti leikfangabílinn og sandalann. Nú hafa rannsóknir leitt í ljós að það er blóð á bæði sandalanum og bílnum. Nú er verið að rannsaka hvort blóðið er úr Ben.

Móðir hans, Kerry Needham, var lengi vel sannfærð um að Ben væri enn á lífi en þegar að blóð fannst á bílnum og sandalanum hvarf sú von fyrir fullt og allt. Hún er nú sannfærð um að Ben hafi verið drepinn fyrir slysni og að einhver eða einhverjir hafi reynt að leyna því með því að láta lík hans hverfa.

The Mirror hefur eftir henni að hún sé sannfærð um að lík Ben hafi verið grafið upp og flutt á nýjan stað rétt áður en bresku lögreglumennirnir komu til Kos á síðasta ári. Einhver eða einhverjir vilji leyna einhverju í tengslum við málið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Vilhjálmur mjög ósáttur við Sigurjón: „Þetta er ein ósmekklegasta færsla sem ég hef séð lengi“

Vilhjálmur mjög ósáttur við Sigurjón: „Þetta er ein ósmekklegasta færsla sem ég hef séð lengi“
Fréttir
Í gær

Baldvin hefur áhyggjur af því að móðir hans kemur heim í dag – „Allir benda hver á annan“

Baldvin hefur áhyggjur af því að móðir hans kemur heim í dag – „Allir benda hver á annan“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Pizza Sveins hækkaði um nærri 6 þúsund kr. á nokkrum mínútum – „Þeir vita að þetta virkar“

Pizza Sveins hækkaði um nærri 6 þúsund kr. á nokkrum mínútum – „Þeir vita að þetta virkar“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Fögnuðu nafninu Kalon

Fögnuðu nafninu Kalon