fbpx
Fimmtudagur 02.maí 2024
Fókus

Einbýlishús með moldargólfi til sölu á 99 milljónir – Frægir nágrannar

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Mánudaginn 21. október 2019 12:33

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Einbýlishús við Bakkaflöt 12 í Garðabæ hefur verið sett á sölu. Eignin er auglýst á fasteignavef Mbl.is.

Um er að ræða rúmlega 230 fm einbýlishús í Garðabæ. Húsið er í mikilli niðurníðslu og selst í því ástandi sem það er. Það vantar nokkra veggi, flesta glugga, hurðir og gólf. Það er tekið fram á Mbl.is að það séu margir möguleikar varðandi breytingar og stækkun hússins. Lóð hússins er 889 fm.

Húsið er staðsett í botnlanga og eru nágrannarnir ekki af verri endanum. Söngkonan Birgitta Haukdal og fjármála- og efnahagsráðherra Bjarni Benediktsson eiga heima í götunni.

„Einstakt tækifæri til að eignast hús á besta stað í Garðabæ!“ Stendur í auglýsingunni.

Þú getur skoðað fleiri myndir af eigninni hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

„Ég er náttúrlega helvítis aumingi eins og Íslendingar að nenna ekki að mótmæla“

„Ég er náttúrlega helvítis aumingi eins og Íslendingar að nenna ekki að mótmæla“
Fókus
Í gær

Mistök að veita Britney frelsi, segir geðlæknir – „Hún er stjórnlaus“

Mistök að veita Britney frelsi, segir geðlæknir – „Hún er stjórnlaus“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Hætti að drekka áfengi fyrir 5 árum

Hætti að drekka áfengi fyrir 5 árum
Fókus
Fyrir 2 dögum

Gerði ótrúlega uppgötvun á Íslandi – Segir gestgjafa hennar hafa hlegið þegar hún spurði að þessu

Gerði ótrúlega uppgötvun á Íslandi – Segir gestgjafa hennar hafa hlegið þegar hún spurði að þessu