fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024
Fókus

Breiðavík er alltaf hjá okkur

Íris Hauksdóttir
Þriðjudaginn 24. september 2019 20:00

Fabúla fékk Bárð til að leika í myndbandi við lagið Diamond boy. Mynd: Eyþór Árnason

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjöllistakonan Margrét Kristín Sigurðardóttir, betur þekkt sem Fabúla, sendi nýverið frá sér lagið Diamond Boy, en textasmíðin hverfist í kringum týnd börn innan samfélagsins. Hún segir málefnið mikilvægt og að menntastofnanir landsins skorti fé til þess að finna þessi börn og styðja, bæði við þau og foreldra þeirra.

Tildrög lagsins voru samtal sem Fabúla átti við mann sem beittur hafði verið líkamlegu ofbeldi af hendi föður síns í æsku. Fabúla var þá stödd á lagahöfundaráðstefnu á Írlandi og eftir stutt en áhrifaríkt samtal við manninn var eins og texti lagsins helltist yfir hana. „Við vorum stödd þarna, lagahöfundar víðs vegar að úr heiminum, með það að markmiði að vinna saman. Ég var að vísu ekki að vinna með þessum tiltekna manni en við tókum tal saman og ég sagði honum að ég starfaði við sérkennslu samhliða tónlistinni. Í kjölfarið fór hann að segja mér frá æsku sinni, sem einkenndist af miklu ofbeldi. Faðir hans beitti hann líkamlegu ofbeldi en samhliða var hann lagður í einelti af skólafélögum. Með öðrum orðum átti hann sér engan griðastað og upplifði sig alls staðar óöruggan. Eftir spjallið, þegar ég hafði kvatt hann, var eins og þyrmdi yfir mig, saga hans og þungi þessarar reynslu, nánast eins og hún þrýsti mér niður og áður en ég vissi af var ég farin að hágráta. Í kjölfarið samdi ég þetta lag, Diamond Boy. Þegar ég svo ákvað að gera myndband við lagið fór ég að hugsa um alla þá demantsdrengi sem gengið hafa í gegnum sams konar hörmungar. Mig langaði að fá einhvern til liðs við mig sem byggi að þessari erfiðu reynslu og hafði samband við Bárð. Ég hafði séð hann í viðtölum, tala opið um æsku sína, og þegar hann sagði já var ég honum mjög þakklát. Ég vissi að nærvera hans og þátttaka yrði sterk og sönn.“

„Þegar ég svo ákvað að gera myndband við lagið fór ég að hugsa um alla þá demantsdrengi sem gengið hafa í gegnum sams konar hörmungar.“
Mynd: Eyþór Árnason

Bárður R. Jónsson, þýðandi hjá Ríkisútvarpinu, gegndi lengi vel stöðu formanns Breiðavíkursamtakanna en hann er einn þeirra drengja sem vistaðir voru á heimilinu á árunum 1964 til 1966. Hann var þá tíu ára og mátti þola bæði líkamlegt og kynferðislegt ofbeldi á Breiðavíkurheimilinu. „Mér fannst ég ekki geta gert annað en að segja já, umræðan um þessi Breiðavíkurmál hefur aldrei vafist fyrir mér. Ég stend alveg undir því að hafa verið vistaður þarna og eiga mér þessa fortíð enda finnst mér að allir ættu að standa undir sinni fortíð. Satt best að segja fannst mér gott að hún bæði mig um þetta, málefnið er gott og kemur við okkur öll.“

Breiðavík er alltaf hjá okkur

Bárður á að baki skrautlega ævi en hann opnaði sig í fyrsta skipti um atvikin á Breiðavík árið 2003 í tengslum við gerð myndarinnar Syndir feðranna. Lítið gerðist um langa hríð og segist Bárður þá hafa óttast að málið félli í gleymsku. Það var ekki fyrr en DV varpaði ljósi á liðna atburði sem gerð myndarinnar komst aftur á skrið og atburðarásin fékk þann meðbyr sem til þurfti. „Ég mætti í Kastljósviðtal sem vakti mikla athygli og í kjölfarið náðist að klára myndina. Eftir að niðurstaða fékkst í hinu svokallaða bótamáli okkar hætti ég svo sem formaður Breiðavíkursamtakanna sem ég hafði gegnt í einhver ár. Fyrir mig felst lítið uppgjör í að ræða þessa hluti, ekki þannig, en ég sagði á sínum tíma að Breiðavík er alltaf hjá okkur. Börn eru alltaf að lenda milli stafs og hurðar í samfélaginu. Það er samfélagslegt vandamál og stöðugt viðfangsefni að hugsa um börnin. Umræðan hjálpar samt hiklaust.“

„Það er löng leið til baka, þegar maður hefur á annað borð ánetjast og endað í fangelsi eins og ég gerði.“
Mynd: Eyþór Árnason

Spurður hvort honum finnist erfitt að ræða þessi mál, segir Bárður svo ekki vera. „Það er samt alltaf erfitt að leggja sjálfan sig til grundvallar. Maður getur rætt menntakerfið, en vanrækt börn eru vanrækt af því að foreldrar þeirra voru það líka og búa ekki við það sem þau þurfa til að geta sinnt börnunum sínum. Á vissan hátt er þetta vítahringur, en á sama tíma er svo margt sem kemur fyrir fólk í lífinu og það er ekki hægt að dæma neinn í þessu. Það er nefnilega snúið að dæma vegna þess að holdið er veikt. Við þurfum að kveða upp réttláta dóma sem hjálp er í, sanngjarna dóma.“

Löng leið til baka, þegar maður hefur á annað borð ánetjast

Bárður hefur nú verið edrú í tæp fjörutíu ár en hann segir leiðina á beinu brautina bratta. „Það gerðist ekkert í mínu lífi fyrr en ég hætti í fíkniefnaneyslu. Sú leið sem ég hef farið er að ræða stöðugt við þerapista í þau 37 ár sem ég hef haldið mér „straight“ og það hefur hjálpað. Í gegnum samtalsmeðferðirnar hef ég reynt að skoða sjálfan mig til að halda utan um þetta allt saman. Það er hins vegar erfitt að segja hvort fíkniefnaneyslan sé bein afleiðing æskunnar. Það verða nefnilega ekki allir fíklar sem drekka eða prófa önnur vímuefni, en ég kem úr ákveðnum áhættuhópi. Ég kem frá brotnu heimili og ólst að hluta til upp á stofnun, pabbi var alki þótt mamma hvorki drykki né reykti. Samkvæmt erfðafræðinni hef ég ákveðna tilhneigingu til að verða fíkill sem reyndist vera raunin. Ég veit upp á hár hvenær ég varð alkóhólisti, ég var sextán ára, vann til sjós og fór að drekka í hverri einustu inniveru. Þannig gerðist það bara að allt í einu var ég orðinn alkóhólisti. Svo vafði þetta upp á sig og ég missti stjórn. Þetta varð aðalatriðið í lífinu: að vera undir áhrifum, sem er auðvitað dæmigert fyrir fíkilinn. En það er löng leið til baka, þegar maður hefur á annað borð ánetjast og endað í fangelsi eins og ég gerði. Þá þarf mikið átak til að komast aftur á beina braut.“

Vistaður á Kleppi í tvo mánuði

Bræðurnir Kolbeinn Kjói og Kjartan Ragnar Kjartanssynir leika í myndbandinu ásamt Bárði, en sonur Fabúlu, Ágúst Örn Wigum, sá um leikstjórn og myndbandsgerð ásamt Sölva Viggóssyni Dýrfjörð og Kjartani Erni Bogasyni. Fabúla vonar að innihald lagsins komist til skila.

„Ég vona að það vakni einhver umræða og þetta verði örlítið lóð á vogarskálarnar. Þetta er stórt þjóðfélagsvandamál sem þarf að tala um og það þarf að leita lausna. Öryggi og vellíðan barna í landinu er á ábyrgð okkar allra. Að mínu mati ætti það að vera efst á blaði stjórnvalda að huga að líðan og velferð barna. Ég las nýverið að átján prósent íslenskra barna verði fyrir líkamlegu eða kynferðislegu ofbeldi fyrir átján ára aldur. Það er svimandi hátt hlutfall og þá er andlegt ofbeldi víst ekki talið með, svo talan er enn hærri. Þetta er flókið og víðfeðmt vandamál, en sem betur fer virðist vera einhver vitundarvakning í gangi. UNICEF stendur fyrir átaki og liður í því átaki er að koma á ofbeldisvarnarráði. Börn eru svo varnarlaus í þessum aðstæðum, ekki síst ef einhver nákominn þeim er gerandi. Hvernig á barnið að geta sagt frá? Þau upplifa einnig oft skömm og vilja ekki að neinn viti,“ segir Fabúla.

„Já, það vill enginn horfast í augu við þetta því það á allt að vera svo gott alls staðar,“ bætir Bárður við. „Ef eitthvað er að, er það okkur sjálfum að kenna en staðreyndin er sú að það er ekki endilega alltaf þannig. Á sama tíma viljum við ekki sýna veikleika okkar. Staðreyndin er bara sú að börn þurfa öryggi og að geta treyst einhverjum. Það þarf ekki endilega að vera foreldri, en það er mikilvægt að geta leitað til einhvers. Ég fann það svo sterkt þegar ég reyndi að verða edrú. Ég hafði verið vistaður á deild tíu inni á Kleppi í tvo mánuði og hafði ákveðnar hugmyndir um hvers konar úrlausn minna mála ég þyrfti. Ég vildi alls ekki viðurkenna að ég væri fíkill heldur væri ég að glíma við ákveðna geðræna erfiðleika og þyrfti rétta lyfjagjöf og stuðning til að ná mér aftur á strik. Það var ekkert hlustað á mig þangað til ákveðinn læknir samþykkti að spjalla við mig. Hann sendi mig að endingu í langtímameðferð til Ameríku og ég treysti honum. Samband okkar hélst svo áfram eftir að ég kom heim úr meðferð, en mér finnst ég hafa öðlast nýtt líf á vistinni þar. Þetta var í fyrsta skipti sem mér fannst að einhver hefði hlustað á mig en þarna var ég búinn að vera inn og út af Kleppi og Litla-Hrauni árum saman og menn vita hvernig það er. Við fáum fréttir af enn einum fanganum sem stytti sér þar aldur enda er stöðug brennsla af fólki í þessum heimi. Það er alltaf einhver að deyja. Hvatinn til að breyta lífi sínu verður nefnilega að koma frá manni sjálfum þótt það geti oft og tíðum reynst óvinnandi vegur ef menn eru illa farnir af fíkniefnum. Það getur svo margt skemmst í höfðinu og geðinu og þá situr maður uppi með sjálfan sig, ónýtan af of mikilli neyslu,“ segir Bárður.

„Þess vegna er svo mikilvægt að við reynum að fyrirbyggja strax í upphafi,“ skýtur Fabúla inn í og heldur áfram. „Við þurfum að kenna börnum að það sé í lagi að tjá vanlíðan. Við þurfum ekki endalaust að sýna glansmynd af okkur sjálfum. Ekki við fullorðna fólkið heldur. Og skólakerfið þarf að vera nógu öflugt, svo þar hafi öll börn tækifæri til að blómstra og finni öryggi. En við þurfum líka að vinna með foreldrum sem lenda í erfiðleikum í uppeldinu og hjálpa þeim, ekki dæma þá heldur hjálpa. Stjórnvöld verða svo að skilja að fyrir utan mannúðarhliðina, þá er það fjárhagslega hagstætt fyrir þjóðfélagið að leggja meiri pening inn í skólakerfið. Bara það eitt að finna þau börn sem standa höllum fæti og hjálpa þeim, getur komið í veg fyrir svo margt. Fyrirbyggjandi starf er svo mikilvægt og þá skiptir sköpum að hver og einn fái að finna sig strax á skólaaldri. Finna að hann hafi eitthvað að segja og skipti máli.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Segja þessa fæðu ekkert hafa með íslenska karlmennsku að gera – „Ertu maður eða mús?“

Segja þessa fæðu ekkert hafa með íslenska karlmennsku að gera – „Ertu maður eða mús?“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Sophia Bush kemur út úr skápnum – Blæs á kjaftasögurnar um hvernig nýja sambandið byrjaði

Sophia Bush kemur út úr skápnum – Blæs á kjaftasögurnar um hvernig nýja sambandið byrjaði
Fókus
Fyrir 3 dögum

Þjáningar Sævars – Nýtt lag og fjársöfnun

Þjáningar Sævars – Nýtt lag og fjársöfnun
Fókus
Fyrir 3 dögum

Leið eins og Mary Poppins

Leið eins og Mary Poppins
Fókus
Fyrir 4 dögum

Kanye West ætlar í klámið

Kanye West ætlar í klámið
Fókus
Fyrir 4 dögum

Leitar sér hjálpar vegna Ozempic notkunar eftir ákall áhyggjufullra aðdáenda

Leitar sér hjálpar vegna Ozempic notkunar eftir ákall áhyggjufullra aðdáenda