Cole Sprouse og Lili Reinhart eru hætt saman. Stjörnuparið leikur saman í vinsælu þáttunum Riverdale.
„Lili og Cole hættu saman fyrr í sumar,“ sagði heimildamaður E! News. „Þau búa ekki saman þessa þáttaröð.“
Heimildamaðurinn sagði að fyrrverandi parið „hafi viljandi haldið fjarlægð frá hvort öðru,“ en þar sem tökur á Riverdale eru byrjaðar aftur eru þau „mun betri“ núna.
Fleiri miðlar vestanhafs hafa greint frá sambandsslitunum.
Aðdáendur Riverdale eru miður sín yfir fréttunum. Aðeins nokkrir dagar eru síðan Lili og Cole voru brosandi og allt virtist leika í lyndi á Comic-Con 2019.
En er þetta alveg búið? „Eins og er, þá er það óljóst hver staðan er. En það virðist eins og þau gætu byrjað saman aftur,“ sagði heimildamaðurinn.
Lili og Cole hafa verið saman síðan 2017, í júlí það ár fóru fyrstu orðrómarnir á kreik um samband þeirra. En það var ekki fyrr en á Met Gala árið 2018 að þau mættu í fyrsta sinn opinberlega á rauða dregillinn sem par.
Eftir það fóru þau að vera mun opnari um samband sitt á samfélagsmiðlum.
Us Weekly greindi fyrst frá sambandsslitunum.