Par sem hefur unnið í ferðaþjónustu á Íslandi í nokkur ár hefur aldeilis upplifað ýmislegt. Kærastinn byrjaði að gera fyndnar teiknimyndasögur byggðar á samskiptum þeirra við ferðamenn.
Teiknimyndasögurnar eru sprenghlægilegar og geta örugglega allir sem vinna í ferðaþjónustu á Íslandi tengt við einhverja þeirra.
Parið deildi teiknimyndasögunum á Bored Panda, vinsælum afþreyingavef, og hafa þær vakið mikla athygli.
Hér að neðan eru nokkrar teiknimyndasögur en þú getur skoðað fleiri hér, eða fylgt þeim á Instagram og Facebook.
Óþolinmæði