Hann er á, hann er á, hann er á, hljómar í Elliðaánum þessa dagana, vatnið jókst og laxinn er að ganga og taka hjá veiðimönnum. Tveggja ára laxinn er að veiðast þar í þó nokkru mæli. Elliðaárnar eru komnar kringum 100 laxa. En það er miklu minni veiði víða í ánum.
Þjórsáin er komin í 450 laxa er og er langefst þessa dagana,. Eystri Rangá kemur næst með 255 og þar hefur veiðin gengið vel .
,,Veiðin gengur vel hjá okkur í Eystri,“ segir Guðmundur Atli Ásgeirsson og það eru orð að sönnu.
Í Blöndu hafa veiðst 150 laxar og svona mætti lengi telja. Það þarf meiri rigningu og fleiri laxa. Það er staðan í dag.
En tveggja ára laxinn er að skila sér en eins árs laxinn er rólegur ennþá. Hann kemur vonandi innan tíðar, ekki veitir af. Það rigndi í gær en það þarf miklu meira.