fbpx
Sunnudagur 24.ágúst 2025
Fréttir

Gekk á milli staða í miðborginni og áreitti fólk: Fannst svo inni í verslun með vörur innan klæða

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 30. maí 2019 07:32

Ljósmynd: DV/Hanna

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Alls eru 85 mál skráð í málaskrá lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eftir gærkvöldið og nóttina. Fjögur þessara mála varða ökumenn sem handteknir voru vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Þeir voru allir látnir lausir eftir sýnatöku.

Klukkan 20.40 í gærkvöldi var tilkynnt um bifhjólaslys á Bústaðavegi. Grunur leikur á að ökumaður hjólsins hafi úlnliðsbrotnað og var hann fluttur með sjúkrabíl á Landspítala. Hjólið skemmdist mikið, að sögn lögreglu.

Innan við klukkustund síðar var tilkynnt um umferðarslys í hverfi 101. Þar hafði verið ekið á gangandi vegfaranda og hlaut viðkomandi minniháttar áverkar á höfði sem sjúkraflutningamenn sinntu á vettvangi. Ökumaðurinn er grunaður um að hafa bakkað bifreiðinni hratt og ógætilega þannig að hætta skapaðist fyrir aðra. Þá var tilkynnt um bifhjólaslys á Höfðabakkabrú. Ökumaðurinn var fluttur með sjúkrabíl á Landspítala en talið er að hann hafi handleggs- og rifbeinsbrotnað.

Um svipað leyti bárust lögreglu tilkynningar um æstan og ölvaðan mann sem var til vandræða í hverfi 101. Maðurinn er sagður hafa gengið á milli staða og áreitt gesti og starfsfólk. Hann fannst síðan í verslun þar sem hann var búinn að troða ýmsum vörum inná sig. Maðurinn var handtekinn og vistaður í fangageymslu.

Um þrjú nótt var óskað eftir aðstoð lögreglu á skemmtistað í miðborginni. Ölvaður og æstur maður hafði brotið rúðu og ráðist að dyravörðum sem hlutu minniháttar áverka. Hann hrækti síðan á lögreglumann við afskipti. Maðurinn var handtekinn og vistaður í fangageymslu.

Upp úr klukkan fjögur í nótt var svo óskað eftir aðstoð lögreglu á skemmtistað í miðborginni vegna líkamsárásar. Mjög ölvaður gerandi var handtekinn á vettvangi og vistaður í fangageymslu. Minniháttar áverkar voru á þolanda.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Landsréttur sneri við úrskurði héraðsdóms í Hraðbankamálinu og sakborningur fer í gæsluvarðhald

Landsréttur sneri við úrskurði héraðsdóms í Hraðbankamálinu og sakborningur fer í gæsluvarðhald
Fréttir
Í gær

Póstburðarmaður vekur mikla athygli eftir að þetta náðist á myndband

Póstburðarmaður vekur mikla athygli eftir að þetta náðist á myndband
Fréttir
Í gær

Pósturinn lokar tímabundið fyrir vörusendingar til Bandaríkjanna

Pósturinn lokar tímabundið fyrir vörusendingar til Bandaríkjanna
Fréttir
Í gær

Segir nauðsynlegt að takmarka Airbnb og setja á leigubremsu

Segir nauðsynlegt að takmarka Airbnb og setja á leigubremsu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Prís alltaf verið með lægsta verðið

Prís alltaf verið með lægsta verðið
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gerður Magnúsdóttir skólastjóri Barnaskóla Kársness

Gerður Magnúsdóttir skólastjóri Barnaskóla Kársness