Víkingur R. 0-1 KR
0-1 Óskar Örn Hauksson(5′)
Síðasta leik dagsins í Pepsi Max-deild karla var nú að ljúka en KR heimsótti þá Víking Reykjavík.
Það var ekki boðið upp á neina flugeldasýningu í leik kvöldsins en aðeins eitt mark var skorað.
Óskar Örn Hauksson sá um að gera það en hann skoraði mark eftir fimm mínútur í fyrri hálfleik.
KR-ingar lyfta sér upp í annað sæti deildarinnar en Víkingar eru í fallsæti með aðeins tvö stig.