fbpx
Laugardagur 07.febrúar 2026

Vandað og fagmannlegt handverk

PKdM arkitektar verðlaunaðir fyrir hátækniverksmiðju Alvogen í Vatnsmýri

Kristján Guðjónsson
Föstudaginn 17. mars 2017 19:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Menningarverðlaun DV í byggingarlist fara til PKdM arkitekta fyrir hönnun á skrifstofum og hátækniverksmiðju Alvogen í Vatnsmýrinni. Þetta er annað árið í röð sem stofan hlýtur verðlaunin, en í fyrra var hún verðlaunuð fyrir orlofshús Bandalags Háskólamanna í Brekkuskógi.

Þessi verkefni voru einnig tilnefnd

Dómnefnd: Aðalheiður Atladóttir (formaður), Laufey Agnarsdóttir og Þórarinn Malmquist.

Fosshótel Jökulsárlón, hannað af Bjarna Snæbjörnssyni, arkitekt FAÍ.

Saxhóll, viðkomu- og útsýnisstaður hannaður af Landslag.

Fangelsið Hólmsheiði, hannað af Arkís.

Áningarstaður við Stórurð í Dyrfjöllum hannaður af Zero Impact Strategies.

Í umfjöllun dómnefndar um verðlaunabygginguna segir: „Nýbygging líftæknifyrirtækisins Alvotech er hluti af skipulagi Vísindagarða í Vatnsmýrinni. Byggingin er þrískipt með inndregna efstu hæð. Norðurálman hýsir skrifstofur fyrir almennan rekstur. Fyrir miðju er framleiðsluhlutinn þar sem fer fram þróun og síðar einnig vinnsla. Suðurálman hýsir vinnurými fyrir rannsóknarteymin sem vinna í framleiðsluhlutanum. Undir öllu er kjallari með tæknirýmum og bílageymslu. Anddyrið er rúmgott þriggja hæða rými sem tengir saman öll skrifstofurými norðanmegin. Í millibilinu milli norðurálmu og framleiðsluhluta er hringstigi sem er fókuspunktur hússins og er vel sýnilegur að utan.

Listaverk leika stórt hlutverk í upplifun á rýmum utan sem innan. Við norðurenda lóðar er listaverk eftir Sigurð Guðmundsson og stórt vegglistaverk eftir Erró skreytir matsalinn á efstu hæð. Vinnurými eru björt, opin og mjög vel skipulögð. Efnis- og litaval er einfalt en þar sem ólík efni eða litir mætast er gaumur gefinn að bestu lausn hverju sinni. Vegna starfseminnar er þó nokkuð af lokuðum flötum á úthliðum. Markvisst er unnið að því að brjóta upp skalann með opnum og lokuðum flötum, lóðréttum og láréttum línum í forsteyptum einingum. Það gefur byggingunni manneskjulegan mælikvarða og aðlagar hana að næsta nágrenni. Aðalinngangur er gerður sýnilegri með lóðréttu líparíti. Deili, utan og innan, eru úthugsuð og fáguð í sínum einfaldleika. Að mati dómnefndar er byggingin einstaklega fallegt dæmi um velheppnaða samvinnu og metnað allra þeirra aðila sem komu að verkinu, bæði á hönnunar- og framkvæmdatíma, til að skila af sér vönduðu og fagmannlegu handverki.“

Mynd: Alvogen

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 12 klukkutímum

Er Jeffrey Epstein á lífi eftir allt saman? – Netverja langar að trúa því

Er Jeffrey Epstein á lífi eftir allt saman? – Netverja langar að trúa því
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Alls ekki víst að Carrick verði ráðinn – Þessir koma einnig til greina

Alls ekki víst að Carrick verði ráðinn – Þessir koma einnig til greina
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Svona er munurinn frá síðustu leiktíð – Liverpool með átján stigum minna en United tólf stigum meira

Svona er munurinn frá síðustu leiktíð – Liverpool með átján stigum minna en United tólf stigum meira
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Van Dijk kallar eftir því að þessir sérfræðingar axli ábyrgð og verndi unga leikmenn

Van Dijk kallar eftir því að þessir sérfræðingar axli ábyrgð og verndi unga leikmenn
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Mættu með „blackface“ til að fagna Heimsmeistaranum – Ekki talið kynþáttaníð í Tyrklandi

Mættu með „blackface“ til að fagna Heimsmeistaranum – Ekki talið kynþáttaníð í Tyrklandi
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Trump fordæmdur fyrir að birta rasískt gervigreindarmyndband – Obama-hjónin birtust í líki apa

Trump fordæmdur fyrir að birta rasískt gervigreindarmyndband – Obama-hjónin birtust í líki apa
Pressan
Fyrir 18 klukkutímum

92 ára kona varð þremur að bana

92 ára kona varð þremur að bana
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Snýr aftur heim eftir þrettán ár í Katar – Hélt framhjá og giftist konu sem er 32 árum yngri en hann

Snýr aftur heim eftir þrettán ár í Katar – Hélt framhjá og giftist konu sem er 32 árum yngri en hann