Alvaro Morata, leikmaður Atletico Madrid, mun gera allt mögulegt til að þurfa ekki að snúa aftur til Chelsea.
Morata er samningsbundinn Atletico á láni en er í eigu Chelsea sem ku ekki hafa áhuga á að nota hann.
Spánverjinn hefur engan áhuga á að snúa aftur til London og mun gera sitt til að koma í veg fyrir að það gerist.
,,Það er augljóst hvað ég vil. Ég vil vera hérna,“ sagði Morata við blaðamenn.
,,Ég mun gera allt svo að ég geti haldið áfram að spila hérna. Ég gerði allt mögulegt til að komast hingað og geri það sama til að vera hér áfram.“
,,Ég hugsa ekki einu sinni um að spila fyrir annað lið. Það er mikið sem ég þarf að gera hér.“
,,Ég vil vera hjá Atletico Madrid út ferilinn, að vera eins mikilvægur og ég get í framtíðinni.“