fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024
Eyjan

Píratar huga að grænni framtíð

Ritstjórn Eyjunnar
Fimmtudaginn 16. maí 2019 10:19

Þingflokkur Pírata

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í gær lagði Smári McCarthy, þingmaður Pírata, fram þingsályktunartillögu að grænum sáttmála ásamt þingflokki Pírata. Er þar lagt til að framtíðarnefnd forsætisráðherra móti tillögur að frumvörpum og þingsályktunartillögum fyrir forsætisráðherra sem verði leiðarvísir ríkisstjórnarinnar að fullu kolefnishlutleysi allra sviða íslensks þjóðfélags. Tillögurnar munu einnig ná til alþjóðlegs samstarfs Íslands að því marki að ná hlutfalli koltvísýrings í andrúmsloftinu undir 300 hluta af milljón á jörðinni á 21. öldinni, samkvæmt tilkynningu frá Pírötum.

Samkvæmt tillögunni þarf að ná fjölmörgum markmiðum fyrir árið 2030, svo sem að útblástur koltvísýrings á Íslandi verði í jafnvægi við bindingu koltvísýrings, að efnahagsleg framtíð landsins verði tryggð á sjálfbæran máta, aðgangur að hreinu vatni og matvælum verði tryggður sem og jöfn tækifæri fyrir komandi kynslóðir og að fjárfest verði í innviðum og uppbyggingu svo markmið græna sáttmálans nái fram að ganga.

Flutningsmenn tillögunnar telja að framtíðarnefnd forsætisráðherra sé besti vettvangur stjórnmálanna til að ræða þær aðgerðir sem þarf að grípa til. Þar eiga allir flokkar á þingi fulltrúa og einnig hægara um vik að ræða áskoranir og lausnir sem munu teygja sig yfir fjölmörg kjörtímabil, samkvæmt tilkynningu.

Á sama tíma og þingsályktunartillaga Pírata var lögð fram lagði þingflokkur Samfylkingar fram þingsályktun sem einnig fjallar um grænan samfélagssáttmála:

„Píratar fagna þessu framtaki Samfylkingarinnar og er ánægjulegt að sjá að komnir eru fram að minnsta kosti tveir stjórnmálaflokkar sem taka yfirstandandi loftslagsvá alvarlega.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Enn einn Snapchat-perrinn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkurinn sem yfirgaf sjálfan sig

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkurinn sem yfirgaf sjálfan sig
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins
Eyjan
Fyrir 1 viku

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki