fbpx
Mánudagur 29.apríl 2024
Fréttir

Óvissa um Víðines: Við erum gleymdir hér og óttumst framtíðina

Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 5. apríl 2019 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Snemma árs 2018 hóf Reykjavíkurborg að bjóða heimilislausu fólki herbergi til leigu í húsnæði í Víðinesi. Fólk sem hafði vakið athygli fyrir að búa í tjöldum, meðal annars í Laugardal, var á meðal leigutaka. Í dag búa 11 manns í Víðinesi og ræddi DV við tvo þeirra á sólbjörtum degi í byrjun apríl.

Víðines er töluvert afskekkt, í nálægð við Álfsnes þar sem Sorpa er með endurvinnslustöð, og í góðri fjarlægð frá Mosfellsheiði og Esjumelum. En heimilismenn kvarta ekki undan staðsetningunni. Fáir þeirra eiga bíl en akstur er í boði tvisvar á dag og allir hjálpast að varðandi vistir og útréttingar.

Svanur Elíasson er á meðal þekktustu íbúa Víðiness en hann bjó um tíma í tjaldi í Laugardalnum. Svanur er ekki síst þakklátur fyrir vistina í Víðinesi vegna þess að þar getur hann verið með hundana sína. Svanur á tvær blíðlyndar blendingstíkur sem tóku blaðamanni og ljósmyndara DV af mikilli gestrisni. Þess á milli börðust þær um athygli eiganda síns og eru báðar dálítið afbrýðisamar, að hans sögn. „Þær eru eins og börn, hvað þetta snertir,“ segir Svanur, en tíkurnar eru mæðgur sem heita Kleó og Jana.

Margir heimilismenn voru heima við þegar DV bar að garði og verður að segjast að það virðist ríkja góður andi á staðnum. Einn starfsmaður er í húsinu og er hann með fasta búsetu. „Hér ríkir góður andi og samhjálp er ríkjandi meðal okkar,“ segir Svanur. Flestir íbúanna eru miðaldra eða síðmiðaldra karlmenn. Einn er í vinnu en aðrir eru öryrkjar. Húsaleigan er 50 þúsund krónur á mánuði en flestir íbúanna eru með ráðstöfunartekjur um 200 þúsund krónur, sumir minna og aðrir meira.

„Maður kemst af með því að lifa spart,“ segir Sveinn og kvartar ekki.

Vistarverur eru þokkalegar í Víðinesi og íbúar hafa ágæta eldunaraðstöðu í eldhúsum. Baðherbergi og eldunaraðstaða eru sameiginleg og hvort tveggja er með ágætum.

Íbúarnir án leigusamnings og framtíðin í fullkominni óvissu

„Það er fínt að vera hérna en það sem við hérna í húsinu erum óánægð með er skortur á framtíðarlausn og óvissa um framtíðina. Þetta átti bara að vera til skamms tíma en sumir hafa verið hérna í eitt og hálft ár og enginn veit hvað tekur við. Hingað koma fulltrúar frá velferðarsviði einu sinni í viku en hafa engar fréttir að færa okkur heldur segja okkur að við séum í rauninni að gefa þeim upplýsingar,“ segir Svanur.

Leigjendurnir skrifuðu flestir undir tveggja mánaða samning á sínum tíma en eru í dag án leigusamnings. Áform um framtíð Víðiness virðast í lausu lofti, sem og framtíð íbúanna, sem eru uggandi um sinn hag.

„Það hefur verið talað um að einkaaðili taki yfir reksturinn á þessu. Þá veit ég ekki hvað verður um okkur,“ segir Sigurjón Ásmundsson, öryrki sem bjó áður í gistiskýli. „Þetta er miklu betra en gistiskýlið,“ segir Sigurjón sem er sáttur við að búa í Víðinesi – en ósáttur við óvissuna.

„Við óttumst framtíðina,“ segir Sigurjón.

Svanur tekur undir þetta. „Við erum gleymdir hér og óttumst framtíðina,“ segir hann.

„Það hefði líka verið gott að fá lengri leigusamning svo við ættum möguleika á húsaleigubótum,“ segir Sigurjón og Svanur er sammála því.

Velferðarsvið staðfestir óvissuna

DV sendi fyrirspurn á Regínu Ásvaldsdóttur, sviðsstjóra velferðarsviðs Reykjavíkur, um málið og barst svar um hæl:

„Upphaflega var Víðines hugsað sem hálfgert neyðarúrræði, sem við settum á laggirnar til að bjóða þeim sem voru á tjaldsvæðinu í Laugardal húsaskjól. Víðines stóð þá tómt og við mátum það betra en að fólk byggi í tjöldum og húsbílum, að minnsta kosti hlýtt og vistlegt. Markmiðið var að það yrði unnið áfram með viðkomandi einstaklingum í því að finna varanlegt húsnæði. Mörgum leið hins vegar vel í Víðinesi, húsnæðið er í eigu borgarinnar og því var ákveðið að framlengja dvöl einstaklinganna enda löng bið í félagslegt húsnæði á vegum borgarinnar og annarra sveitarfélaga. Velferðarráð hefur hins vegar verið í stefnumótun varðandi málefni heimilislauss fólks og einstaklinga í vímuefnavanda og er von á tillögum á fundi ráðsins þann 17. apríl næstkomandi. Ein af tillögunum er að auglýsa eftir rekstraraðila að Víðinesi og vera þar með áfangaheimili sem er þá fyrir fólk sem hefur lokið áfengismeðferð. Velferðarsvið mun vinna með hverjum og einum einstaklingi sem er í Víðinesi í dag að framtíðarlausn, einhverjir gætu hugsanlega verið áfram og einhverjir fara í annað húsnæði.“

Þegar DV benti í svarpósti við þessu svari á að íbúarnir óttuðust um sinn hag, þakkaði hún fyrir upplýsingarnar og skrifaði jafnframt:

„Við þurfum greinilega að bæta upplýsingagjöfina.“ Undir þetta tekur Hrafnhildur Ósk Ólafsdóttir, geðhjúkrunarfræðingur og deildarstjóri á velferðarsviði. „Við munum bæta upplýsingagjöfina. Þeir einstaklingar sem fengu boð um að flytja upp í Víðines á sínum tíma voru ekki með miklar og flóknar þjónustuþarfir. Þrátt fyrir það höfum við lagt mikið upp úr því að þeim standi stuðningur til boða ef þeir þurfa. Því er umsjónarmaður búsettur í Víðinesi. Auk þess hefur vettvangs- og ráðgjafateymi Reykjavíkurborgar (VoR) komið og hitt íbúa í Víðinesi að lágmarki einu sinni í viku. Í tengslum við mögulegt útboð hafa ráðgjafar af þjónustumiðstöðvum lagt áherslu á að vera í virku sambandi við hvern íbúa til stuðnings og ráðgjafar um framtíðarlausnir ef til breytinga kemur. Við erum að bíða eftir tillögum um framtíð Víðiness. Þegar þær upplýsingar liggja fyrir verður öllum málum fundinn farvegur óski íbúar eftir því.“

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Framsóknarmenn styðji ÁTVR og forvarnir – „Atlaga Sjálfstæðisflokksins að ÁTVR er ævintýraleg“

Framsóknarmenn styðji ÁTVR og forvarnir – „Atlaga Sjálfstæðisflokksins að ÁTVR er ævintýraleg“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Pálmatré raunhæft verkefni en aðeins eitt tré mun rísa

Pálmatré raunhæft verkefni en aðeins eitt tré mun rísa
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd