fbpx
Mánudagur 29.apríl 2024

Kim Kardashian sættist við vin Kanye West eftir Twitter stríð – Sjáið myndbandið

Ritstjórn Bleikt
Mánudaginn 1. apríl 2019 09:30

Kanye West og Kim Kardashian.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í gærkvöldi fór fyrsti þáttur sextándu seríu af Keeping Up With the Kardashians í loftið. Í þættinum er sýnt frá því þegar Kim Kardashian hittir gamlan vin eiginmanns síns, Kanye West, til að ná sáttum.

Kanye West hefur áður verið í KUWTK, en þá aðallega í bakgrunn. Nú er í fyrsta skipti að hann tekur þátt í svokölluðum „skriftastól“ eða confessional eins og það er kallað í þáttunum.

„Þetta er í fyrsta skipti sem ég geri þetta,“ segir Kanye West við myndavélina. „Ég er reyndar ekki að reyna að gera vel.“

Samkvæmt rapparanum þá langaði honum að taka þátt í viðtalinu eftir að hafa séð eitthvað svipað í myndinni The Incredibles.

„Þetta byrjar á viðtölum! Ofurhetjurnar eru að gefa viðtöl. „Eiginkonan er með stóran rass og ég sé líf okkar verða meira og meira eins og The Incredibles þangað til við getum loksins flogið.“

Í þættinum segja hjónin frá því að þau séu að fara að eignast annað barn.

„Við erum að eignast strák,“ segir Kim við fjölskyldu sína. Allir viðstaddir fagna fréttunum.

Kim segir að Saint West, sonur þeirra, sé uppáhalds barnið sitt og hvetur Kanye eiginkonu sína að forðast það að lýsa yfir uppáhaldi.

„Ég held það breytist, þetta er staðreynd,“ segir Kim. „Ég var uppáhald mömmu í góðan áratug og núna er það Kylie.“

Kim Kardashian og Kylie Jenner.

West hjónin fara til Chicago í þættinum og þurfa að fá aðstoð frá fyrrverandi vin Kanye, Rhymefest. Rhymefest skrifaði neikvæða hluti um rapparann á Twitter og svaraði Kim honum með fullum hálsi á samfélagsmiðlinum.

Kanye hvatti eiginkonu sína til að fyrirgefa Rhymefest og leggja allt drama til hliðar. Kim, Kanye og Rhymefest hittust til að ræða saman og ná sáttum.

„Kanye er frá þorpi og þorpinu fannst eins og elsku bróðir okkar hefði snúið baki sínu við þorpinu,“ sagði Rhymefest. „Þannig ég sagði eitthvað.“

Kim segist skilja sjónarhorn Rhymefest en segir að hann hefði getað talað um þetta í trúnaði.

„Mér finnst eins og allir ættu að tala við hvort annað og ekki á samfélagsmiðlum,“ segir hún. Rhymefest viðurkennir að hann hefði getað brugðist betur við.

Horfðu á klippur úr þættinum í myndbandinu hér að neðan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 klukkutímum

Veðrið hefur leikið við höfuðborgarbúa en það breytist um miðja vikuna

Veðrið hefur leikið við höfuðborgarbúa en það breytist um miðja vikuna
433Sport
Fyrir 2 klukkutímum

Þetta verður stærsta verkefni Slot hjá Liverpool

Þetta verður stærsta verkefni Slot hjá Liverpool
Fókus
Fyrir 3 klukkutímum

Guðrún byrjaði með manni í fangelsi og varð ólétt eftir hann – „Ég vissi ekki fyrir hvað hann sat inni“

Guðrún byrjaði með manni í fangelsi og varð ólétt eftir hann – „Ég vissi ekki fyrir hvað hann sat inni“
Eyjan
Fyrir 3 klukkutímum

Halla Hrund bætir enn við fylgi sitt og fylgi Katrínar minnkar

Halla Hrund bætir enn við fylgi sitt og fylgi Katrínar minnkar
Pressan
Fyrir 5 klukkutímum

Gullúr ríkasta farþegans um borð í Titanic seldist fyrir 210 milljónir

Gullúr ríkasta farþegans um borð í Titanic seldist fyrir 210 milljónir
Pressan
Fyrir 7 klukkutímum

Klikkuð samsæriskenning um Joe Biden á miklu flugi

Klikkuð samsæriskenning um Joe Biden á miklu flugi

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.