Það eru komnar nokkrar vikur síðan allur heimurinn þráði ekkert heitar en að Lady Gaga og Bradley Cooper yrðu par. Þau sannfærðu alla um að þau væru ástfangin eftir flutning þeirra á laginu ‚Shallow‘ á Óskarnum 2019.
Lady Gaga hætti með kærastanum sínum í síðasta mánuði og hefur verið að njóta lífsins einhleyp síðan þá.
En nú er hún hugsanlega komin með nýjan kærasta. Sögusagnir herma að söngkonan er að slá sér upp með leikaranum Jeremy Renner.
Us Weekly greinir frá. Samkvæmt heimildarmanni vefsíðunnar hefur Lady Gaga „eytt miklum tíma“ með Jeremy og dóttir hans. En heimildarmaðurinn segist ekki halda að það sé eitthvað rómantískt á milli þeirra, eins og er!
Við bíðum spennt eftir frekari fréttum af hugsanlega næsta stjörnupari Hollywood!