fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024

Svaramaðurinn féll í yfirlið í miðri brúðkaupsathöfn og braut í sér tennurnar – Myndband

Aníta Estíva Harðardóttir
Mánudaginn 18. mars 2019 17:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ýmislegt getur komið upp á á brúðkaupsdaginn sem gerir það að verkum að athöfnin varð ekki alveg eins og brúðhjónin sáu hana fyrir sér. Sem betur fer er það yfirleitt eitthvað sem er ekki mjög alvarlegt svo sem börn sem gera eitthvað af sér eða jafnvel gæludýr sem pissa á leið inn með hringana.

Það hafa þó komið fyrir nokkur alvarlegri atvik eins og þegar vitlaust nafn hefur verið sagt eða annað álíka. Það sem gerðist í brúðkaupi nokkru á dögunum var líklega ekki alveg það sem brúðhjónin, né aðrir gestir höfðu séð fyrir.

Þegar ung kona var að syngja rómantískt lag til hjónanna í athöfninni leið yfir svaramann brúðgumans. Svaramaðurinn stóð á stétt féll beint fram fyrir sig með andlitið á stétt sem olli því að tennur hans brotnuðu við lendinguna. Metro greinir frá atvikinu en ekki hefur verið greint frá nafni mannsins.

Eftir fallið má sjá hvernig gestir brúðkaupsins hlaupa að manninum og ná þau honum til meðvitundar aftur. Honum er svo fylgt út úr athöfninni með pappír yfir blóðugu andlitinu. Ekki hefur fengið staðfest hvað olli yfirliðinu en talið er að það gæti tengst því að brúðkaupið var haldið utandyra og heitt var í veðri.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

England: Manchester City í engum vandræðum

England: Manchester City í engum vandræðum
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Mistök hjá Liverpool? – Vill sjá fyrrum stjóra Chelsea við stjórnvölin

Mistök hjá Liverpool? – Vill sjá fyrrum stjóra Chelsea við stjórnvölin
Fókus
Fyrir 5 klukkutímum

Lítt þekkt ættartengsl: Sjónvarpskonan sem gustar af og foringi lögfræðinga

Lítt þekkt ættartengsl: Sjónvarpskonan sem gustar af og foringi lögfræðinga
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Hákon fékk mínútur í gríðarlega mikilvægum sigri

Hákon fékk mínútur í gríðarlega mikilvægum sigri
Eyjan
Fyrir 7 klukkutímum

Orðið á götunni: Halla Hrund flýgur á toppinn – skjálftavirkni eykst

Orðið á götunni: Halla Hrund flýgur á toppinn – skjálftavirkni eykst
Pressan
Fyrir 7 klukkutímum

Ófrjósemisaðgerðum hefur fjölgað mikið í Bandaríkjunum í kjölfar þrengri heimilda til þungunarrofs

Ófrjósemisaðgerðum hefur fjölgað mikið í Bandaríkjunum í kjölfar þrengri heimilda til þungunarrofs
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Telur að rifrildið umtalaða í gær tali sínu máli – ,,Sannfærður um að hann sé á förum“

Telur að rifrildið umtalaða í gær tali sínu máli – ,,Sannfærður um að hann sé á förum“
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Málefni Salarins í Kópavogi: Saka bæjarstjóra um takmarkaðan skilning og áhuga á lýðræði

Málefni Salarins í Kópavogi: Saka bæjarstjóra um takmarkaðan skilning og áhuga á lýðræði

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.