fbpx
Mánudagur 29.apríl 2024

Heiðrún er greind með jaðarpersónuleikaröskun: „Ég veit að það getur verið erfitt að elska manneskju eins og mig“

Mæður.com
Fimmtudaginn 28. febrúar 2019 15:00

Heiðrún Gréta og eiginmaður hennar á brúðkaupsdaginn.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Þú styrkir mig, styður mig og rífur mig upp þegar mér finnst veröldin vera að hrynja í kringum mig. Ég veit það getur verið erfitt að elska manneskju eins og mig,“ skrifar Heiðrún Gréta í einlægu bréfi til eiginmanns síns.

Heiðrún Gréta var nýlega greind með jaðarpersónuleikaröskun. Heiðrún Gréta er bloggari á maedur.com og hefur áður talað opinberlega um andleg veikindi sín.

Í bréfinu til eiginmanns síns, sem hún birtir á maedur.com, þakkar hún honum fyrir að styðja sig og elska sig þegar hún getur það ekki sjálf.

Lestu allt bréfið í heild sinni hér að neðan.

„Fyrst vil ég byrja á því að útskýra þessa færslu fyrir öðrum sem koma til með að lesa hana. Ég hef áður talað um andleg veikindi mín. Nýlega fékk ég loksins greiningu þar sem kom fram að ég er með sjúkdóm sem heitir jaðarpersónuleikaröskun.

Minn elskulegi eiginmaður.

Þessi færsla er tileinkuð þér.

Þann tíma sem við höfum verið saman hefurðu verið besti vinur minn, faðir barnanna minna, eiginmaðurinn minn og samviskan mín.

Þú styrkir mig, styður mig og rífur mig upp þegar mér finnst veröldin vera að hrynja í kringum mig.

Ég veit að það getur verið erfitt að elska manneskju eins og mig.

Manneskju sem þarf stanslausa ást, stanslausa fullvissu um að hún verði ekki yfirgefin og skilin eftir ein. Manneskju sem finnur annað hvort fyrir milljón tilfinningum á sama tíma eða endalausum tómleika. Ég get verið kærulaus, pirruð, leiðinleg og tilitslaus án þess að ætla mér það og fyrir það biðst ég afsökunar.

Ég veit að það getur verið erfitt að skilja hvernig þessi sjúkdómur sem ég hef virkar. Ég er sjálf að átta mig á því, en ég er svo fegin að hafa þig við hliðina á mér á meðan.

Takk fyrir að vera alltaf stoltur af mér, þótt það komi dagar, jafnvel vikur sem ég get ekki gert neitt gagn. Takk fyrir að styðja mig alltaf í öllum ákvörðunum sem ég tek.

Takk fyrir að taka mér eins og ég er.

Takk fyrir að elska mig þegar ég get það ekki sjálf.

Markmið mitt er að læra að elska sjálfa mig eins og þú elskar mig.“

Þú getur fylgst með skrifum Heiðrúnar Grétu á maedur.com.
Snapchat: @heibbaleibba
Instagram: @heidrun.greta

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 8 klukkutímum

Peter Andre gæti fengið sekt vegna þess að hann nefnir ekki dóttur sína – Íslendingar hafa rýmri rétt til að trassa að nefna börn

Peter Andre gæti fengið sekt vegna þess að hann nefnir ekki dóttur sína – Íslendingar hafa rýmri rétt til að trassa að nefna börn
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Ekki of vinsæll í Barcelona eftir valið – ‘Sá besti’ kemst ekki í liðið

Ekki of vinsæll í Barcelona eftir valið – ‘Sá besti’ kemst ekki í liðið
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Byrjunarlið KR og Breiðabliks – Ísak og Patrik á bekknum

Byrjunarlið KR og Breiðabliks – Ísak og Patrik á bekknum
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

England: Manchester City í engum vandræðum

England: Manchester City í engum vandræðum
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Hákon fékk mínútur í gríðarlega mikilvægum sigri

Hákon fékk mínútur í gríðarlega mikilvægum sigri
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

England: Frábær fyrri hálfleikur tryggði Arsenal þrjú stig í stórleiknum

England: Frábær fyrri hálfleikur tryggði Arsenal þrjú stig í stórleiknum

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.