fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024

Agnes er ekki stoltur Íslendingur: „Ég er komin með nóg af því að glæpamenn og dónar stjórna landinu okkar“

Ritstjórn Bleikt
Föstudaginn 22. febrúar 2019 17:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Agnes Gunnþóra Sveinsdóttir er ekki stolt af því að vera Íslendingur. Henni finnst stundum eins og hún búi á einhverju „djók landi“ og er komin með nóg af því hvernig farið er með ellilífeyrisþega, öryrkja og láglaunafólk á Íslandi.

„Eins og staðan er í dag, get ég ekki sagt að ég sé stoltur Íslendingur. Ég veit ekki með ykkur hina Íslendingana, en ég er búin að fá nóg. Við getum öll verið sammála um það að eitthvað mikið er að fara að gerast ef ekki fer að takast að semja við stéttarfélögin að Íslandi og það verður ekki fallegt,“ segir Agnes Gunnþóra í pistli á bloggsíðunni Vynir.is.

„Ég er komin með nóg af því að glæpamenn og dónar stjórna landinu okkar. Menn sem fá afskrifaðar margar milljónir af því bara og menn sem eru með svona sorakjaft eins og náðist á upptöku á Klausturbar eiga ekki að vera að stjórna landinu okkar, punktur,“

segir Agnes Gunnþóra. Hún segist vera komin með nóg af því hvernig farið er með ellilífeyrisþega, öryrkja og láglaunafólk á Íslandi.

„Laun þeirra eru ekki lengur í samræmi við leiguverð, matarkostnað og aðrar lífsnauðsynjar,“ segir Agnes Gunnþóra. Hún segist einnig vera komin með nóg af „yfirgnæfandi miklum launahækkunum hjá fólki sem hefur góð laun nú þegar.“

Orðlaus yfir launum bankastjóra

Agnes Gunnþóra segist vera orðlaus yfir launahækkun bankastjóra Landsbankans.

„Frá 2015 til 2018 hafa launin hækkað um 60 prósent. Þetta er gjörsamlega út í hött. En það sem er enn verra er að þó hún hafi fengið þessa svakalegu launahækkun, þá á hún samt langt í land að ná launum hjá bankastjóra ríkisrekna banka Íslands, Íslandsbanka, sem er rekinn 100 prósent af ríkinu. Því þar er bankastjórinn með 5,8 milljónir á mánuði í laun og þetta fara skattarnir okkar í,“ segir Agnes Gunnþóra og heldur áfram:

„Af hverju erum við að borga 1 manneskju 5,8 milljónir á mánuði. Það gætu 8 manns haft það gott með um 720-730 þúsund á mánuði í staðin og sinnt öðrum mun mikilvægari störfum eins og að bjarga lífum, eins og hjúkrunarfræðingar gera sem dæmi.“

Agnes Gunnþóra Sveinsdóttir er komin með nóg.

Nýr skandall eftir hálft ár

Agnes Gunnþóra segir að allt þetta verði gleymt og grafið eftir hálft ár.

„Það er alltaf svo mikið „f*** up“ í landinu að eftir hálft ár verður það einhver nýr skandall, eins og „Bjarni Ben/Icehot1 mun fara aftur á kreik og halda swingerpartý í nýju höllinni sinni.“ Nei ég segi svona en þetta væri alveg trúverðugur titill fyrir næsta skandall á Íslandi,“

segir Agnes.

„Við þjóðin verðum að standa saman og stoppa þessa vitleysu af. Það er ekki nóg að tala um hlutina, það þarf að gera þá líka og standa við loforð sín.“

Hún hvetur fólk til að mæta á Hungurgönguna á laugardaginn og mótmæla óréttlæti í landinu. Hungurgangan er á morgun, laugardaginn 23. febrúar, klukkan 14:00.

Að lokum segir Agnes:

„Styðjum við bakið á þeim sem minna mega sín. Við eigum öll að geta lifað lífi án þess að þurfa að hugsa hvort það verði hægt að borða á morgun. Í hvaða starfi sem er eða sem öryrkjar eða ellilífeyrisþegar.“

Hægt er að lesa pistill Agnesar Gunnþóru í heild sinni á Vynir.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 klukkutímum

Björn Jón skrifar: Forsetaefni íhaldsmanna?

Björn Jón skrifar: Forsetaefni íhaldsmanna?
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Besta deildin: Víkingar svöruðu vel fyrir sig gegn KA – Danijel með tvennu

Besta deildin: Víkingar svöruðu vel fyrir sig gegn KA – Danijel með tvennu
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Einkunnir Tottenham og Arsenal – Havertz valinn bestur

Einkunnir Tottenham og Arsenal – Havertz valinn bestur
Pressan
Fyrir 5 klukkutímum

Öfgaveður kostaði ESB-ríkin 2.000 milljarða á síðasta ári

Öfgaveður kostaði ESB-ríkin 2.000 milljarða á síðasta ári
Fókus
Fyrir 7 klukkutímum

Klípan sem allir Íslendingar lenda í – Á að gefa þjórfé eða ekki?

Klípan sem allir Íslendingar lenda í – Á að gefa þjórfé eða ekki?
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Stjarnan tjáir sig eftir ótrúlega umfjöllun blaðamanns: Hótar lögsókn og ásakar hann um lygar – ,,Hef aldrei og mun aldrei gera þessa hluti“

Stjarnan tjáir sig eftir ótrúlega umfjöllun blaðamanns: Hótar lögsókn og ásakar hann um lygar – ,,Hef aldrei og mun aldrei gera þessa hluti“
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Conte kominn með nýtt verkefni – Mun gera þriggja ára samning

Conte kominn með nýtt verkefni – Mun gera þriggja ára samning
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Engar mennskar leifar hafa fundist í flaki Titanic – Hvað varð um líkin?

Engar mennskar leifar hafa fundist í flaki Titanic – Hvað varð um líkin?

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.