Petr Cech, markvörður Arsenal, viðurkennir að liðið hafi spilað mjög illa á fimmtudaginn í Hvíta-Rússlandi.
Cech og félagar mættu BATE Borisov í Evrópudeildinni en um var að ræða fyrri leik liðanna í 32-liða úrslitum.
BATE vann leikinn með einu marki gegn engu og segir Cech að það hafi einfaldlega ekkert gengið í fremstu línu liðsins.
,,Þetta var einn af þessum leikjum þar sem ef við hefðum spilað í nokkra klukkutíma í viðbót þá hefðum við ekki skorað,“ sagði Cech.
,,Þannig leikir eiga sér stað. Það er það góða við að spila tvær viðureignir – þú getur bætt upp fyrir það í þeim seinni.“